Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Side 82

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Side 82
framfara, en lætur heldur ekki svo auð- veldlega eggjast til óhappa. (. . .) Það er líka eins og þjóðin hafi spurt sjálfa sig að því hver hafi kennt Jónasi að yrkja „lipurt og létt“. Af kvæðum ald- anna á undan sér hefir hann varla lært það. *** Kenndi sem sagt Sigurður Breiðfjörð Jón- asi að yrkja „lipurt og létt“? Er Þorsteinn ekki þarna einfaldlega að halda því fram að ritdómur Jónasar hafi ekkert verið ann- að en enn eitt dæmið um misheppnað föð- urmorð í bókmenntunum? Þegar Þorsteinn Erlingsson heldur fram hlut rímananna sér hann þær einkum sem dæmi um kjarnmikla alþýðulist. Og fleiri höfuðskáld verða síðan til að sýna rímna- skáldunum áhuga og rækt undir lok nítj- ándu aldar. Þannig sér Einar Benedikts- son um útgáfu á úrvalsritum Sigurðar Breiðfjörðs 1895, og birtir þar formála með ítarlegu æviágripi Sigurðar. Að vísu segir hann um skáldið: „Vér finnum að sá sem röddina á og „arkar“ um leiksviðið er konungssonur í álögum“ og er þar að vísa til gullmolanna sem hægt sé að finna inn- an um allan leirinn. í samræmi við þetta tekur Einar undir skoðanir Jónasar á kveðskap Breiðfjörðs með þessum orð- um: Tristansrímur urðu ekki af þeirri ástæðu fyrir hinum alkunna FjÖlnis- ritdómi, að þær væru auðugri af „hor- tittum" en aðrar rímur hans (...) Jónas háði (. . .) þar sannkallaðan Stóradóm yfir erfðalöstum rímnakveðskaparins yfir höfuð, þótt Tristansrímur væru látnar gjalda einar að mestu leyti. Væru aðeins nokkrar öfgar numdar burt, þyrfti naumast annað en breyta nafni, tilvitnunum, o.s.frv., til þess að dómurinn ætti vel við allar rímur Sig- urðar. Það er sannast að segja að rit- gjörð þessi, sem yfir höfuð er óhrekjanleg frá upphafi til enda, var orð talað í tíma, og það er efalaust að hún hefur vakið marga menn, einkum eftir á til sannfæringar um að nú væri nóg komið af svo góðu (...) Einar víkur einnig nokkru síðar að meint- um bætandi áhrifum dómsins og segir um það mál: Sigurður fór sínu fram jafnt eftir sem áður í rímnakveðskapnum, og (. . .) þeir hafa án efa rangt að mæla, sem ætla að unnt sé að sýna fram á nokkra breyting til hins betra í síðari ljóðagerð hans, er stafi frá ritdómi þessum. Sig- urður játaðist ekki undir aðra hús- bændur en almenningsálitið, sem Fjölnisdómurinn stóð of langt fyrir of- an, og vini sína, sem lögðu féð til í bráðina. Þessum tveim herrum tókst honum vel að þjóna, þótt Fjölni líkaði illa. Þó aðdáun Einars á Sigurði Breiðfjörð sé ef til vill nokkuð blandin og ekki með öllu áreynslulaus segir þó sjálft útgáfuverkið sína sögu. Eins og Þorsteinn lítur Einar fyrst og fremst á rímumar sem alþýðulist. Og útgáfan er víst þannig til komin að Einar mun einhverntíma allmörgum árum áður, er hann var helst til félítill í Kaup- mannahöfn, hafa gengið fyrir forráða- menn hjá bókaforlagi Gyldendals og tjáð þeim að Robert Bums Islendinga væri enn óútgefinn og sætti þjóðin sig ekki við það 80 TMM 1990:2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.