Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Síða 108

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Síða 108
óeinlægni og lygi grafa undan merkingu orða og athafna. Þetta er vandmeðfarið efni og hætt við að boðskapurinn beri ljóðið ofurliði eins og mér fannst verða raunin á með „Morgunblaðið — Góðan daginn". Hitt getur og gerst að tilvísunin verði of óljós og almenn til að hún beri lesanda nokkurn boðskap. Það verður hún til dæmis í ljóðinu „Þjóð“: Vakin sofin við skjáinn rýnir í tómið. Heyrir nóttina þeysa finnur tíðina anda. Ótt og kalt. Ingibjörg hittir þeim mun betur í mark í þeim ljóðum sem tengjast hinu meginþema bók- arinnar — ástinni. Astin birtist hér aðallega í ljósi missis og söknuðar — og í ljósi tímans. Fortíð speglast í sársauka nútíðar. Ingibjörg beitir víða endurtekningum til þess m.a. að tefla saman fortíð og nútíð. Orðalag í upphafi ljóðs er endurtekið í lokin, gjaman ögn breytt, og dregur þannig fram andstæður og hlið- stæður. Jafnframt er endurtekningin auðvitað mikilvægt stílbragð sem ljær ljóðunum sér- staka hrynjandi eins og í titilljóði bókarinnar þar sem því er beitt af snilld: Áður var nóttin svo nálæg hlý og myrkrið svo mjúkt og máninn sem skein á nakið hörund og hafið spegill og þú í nóttinni nálægur hlýr einsog myrkrið mjúka en nú eru aðrir tímar. Þetta ljóð er líka talsvert dæmigert fyrir mynd mál skáldsins. Ingibjörg er spör á tákn og myndimar oftast nær einfaldar og gagnsæjar. Stemmningar verða til úr fáum orðum, eins og hér að ofan. Nóttin kemur víða fyrir í þessum ljóðum og henni tilheyrir oftast þögn, hlýja og mýkt. Ingibjörg kann líka að bregða upp óvæntum myndum, setja orðin í nýtt sam- hengi eins og til að hnippa í okkur. Henni tekst t.d. með einföldu bragði að sýna hve heimurinn getur virst framandi og öfugsnúinn þeim sem býr yfir sorg: Þegar ástin dó hélt fólk áfram „að hoppa aftur á bak / yfir götur og torg / einsog ekkert hefði gerst“ segir í „Óbreytt ástand“. Auðvitað kemur það svo stundum fyrir eins og gengur, að notast er við algeng tákn eða myndir án þess að lánist að gæða þau nýju lífi en það er miklu sjaldnar (kannski helst í ljóðinu „Lækurinn"). Mér fundust líka titlar sumra ljóðanna full hvers- dagslegir og ekki bæta neinu við þau. Spum- ing hvort ekki hefði mátt sleppa nafngiftum í þeim tilvikum. (Þessi athugasemd á auðvitað ekki við um þá titla sem eru lyklar að mynd- hverfingu o.s.frv.) Ljóðunum svipar mörgum saman að formi til, m.a. vegna endurtekninganna og líka vegna þess hvað þau eru flest knöpp. En þó Ingibjörg sé alla jafna spör á orðin og sefj- unarmátt tungumálsins tekst henni oft hvað listilegast upp þegar hún sleppir fram af sér beislinu, beitir myndum jafnt sem stuðlum og leyfir sér að hafa hendingarnar langar og tæl- andi: Mig hefur furðað á hamsleysi haustsins í trjánum og hafi ég séð þig í laufgulum leik meðal loganna nakinn og einan þar sem ég stóð bakvið tjöldin og ljós mitt slökkt má það undarlegt heita ef gráblaut stéttin fær gleypt allt það gull fyrir dögun. (Úr „Við gluggann um nótt“) „Draumur um Chile í september löngu síðar“ er líka í þessum dúr og þar fer einkar vel 106 TMM 1990:2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.