Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Page 15

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Page 15
GRASAFERÐ AÐ LÆKNISRÁÐI helda,“ segir Svava og hvarflar augunum um stofuna. Síðan bætir hún við: „Hins vegar get ég ekki rekið nagla og heldur ekki saumað.“ Var þér ekki kennt að beita nál í æsku? „Það var ekki kennd hefðbundin handavinna í barnaskólanum í Wynard. Það var föndrað og við bjuggum til alls konar skemmtilega hluti. í barna- skólanum í Reykjavík reyndi fyrst á myndarskapinn. Ég var allan veturinn að prjóna ræmu utan um herðatré. Hver einasti handavinnutími byrjaði á því að kennarinn lét mig rekja upp það sem ég hafði gert heima. Aldrei nógu vel gert, sagði hún. Þetta var mikill raunavetur. Mamma mín og föðuramma gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að hughreysta mig og létta mér þrautirnar - ekki með því að prjóna fyrir mig þó, við vorum svo heiðarlegar, - en ekkert gekk hjá mér. Með ósköpum tókst mér að ljúka þessu fyrir skólaslit. Þá sagði kennarinn: “Jæja, þetta er þá loksins búið", og bætti við með áherslu, „en þetta fer ekki á sýninguna.“ Móðir mín brást við með þeim hætti sem ég mun aldrei gleyma. Hún setti þetta handverk mitt á herðatré sem pabbi notaði eingöngu fyrir hempuna sína og var alltaf kallað hempuherðatréð. Þannig hóf hún þetta háðungarstykki mitt til upphefðar og ég fylltist barnalegu stolti og gleði yfir því að mamma skyldi telja það þess virði að hljóta svo göf- ugt hlutverk. Þar fékk það svo að vera þangað til það var orðið slitið en þá gaf hún mér það til eignar.“ „Jörðin og maðurinn eru eitt vistkerfi“ Eins og sést gjörla í Gunnlaðar sögu og smásögunni „Undir eldfjalli“ er upp- græðsla jarðarinnar Svövu hugleikin. „Það byggi ég á eigin reynslu,“ útskýrir hún. „Ég á móðurætt að rekja til Landsveitarinnar þar sem fjölskyldan flosn- aði upp vegna jarðvegsins, sandfoks og Heklugoss. Ég hef ekki komist austur síðan ég veiktist. Bróðir minn, Þór, er hvatamaður að þessu. Það er mjög gaman að sjá hvað það eitt að friða landið hefur góð áhrif á gróðurinn.“ Svava neitar því samt að vera á móti sauðkindinni. „Hún má bara ekki vera hvar sem er. Mér þykir ósköp vænt um sauðkindina en það endar með því að hún hafi heldur ekkert að éta. Mér finnst að maðurinn beri það mikla ábyrgð á sauðkindinni að það eigi að skipuleggja landið þannig að við höfum bæði gróður og sauðkind.“ „Ég held að nú sé lífsnauðsyn að taka upp það gamla viðhorf til jarðarinn- ar að hún og maðurinn séu eitt vistkerfi. Það er þekking sem við erfðum úr goðsögunum. Síðar var þetta talið heimskulegt en nú er að koma á daginn að jörðin og raunar alheimurinn allur er eitt og sama vistkerfið.“ Islenskir námsmenn og erlendir fræðimenn hafa reglulega samband við Svövu til að spyrja hana um verk hennar. „Þeir hafa m.a. áhuga á tvíröddun- TMM 1998:3 w w w. m m. ís 13
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.