Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Page 124

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Page 124
ÞORSTEINN GYLFASON mannlegt mál sé félagslegt íyrirbæri og reglur þess félagslegar reglur. Satt að segja er þetta frumatriði í allri málspeki og málfræði tuttugustu aldar. Og tæplega mundi Kristján vilja neita því um skynjunina að stundum sjái fólk það sem það vill sjá, og stundum geti vilji þess ráðizt af félagslegum aðstæð- um eins og hleypidómum sem það er alið upp við. Manneðlið er snúnara. í rökgreiningarheimspekinni sem Kristján trúir á hefur það verið meginkenning alla þessa öld að eðlishugtakið eigi engan rétt á sér. Þessu trúði Bertrand Russell með afar traustum rökum, þessu trúðu raunhyggjumennirnir í Vín, þessu trúði Karl Popper, þessu trúir Quine. Og þessu hafa margir aðrir trúað líka, til að mynda Jean-Paul Sartre. Þegar ein- hver póstmódernisti vísar hugmyndum um manneðlið á bug er hann vísast að bergmála áratuga gamla rökstudda kennisetningu allrar nútímaheim- speki. En þá er þess að gæta að hér er um að ræða frumspekilegt eðlishugtak sem Aristóteles smíðaði í fornöld. Auðvitað má skilja orðið ,manneðli’ mörgum skilningi. Til dæmis má skilja það á einn veg í erfðafræði. Þá er eðli það sama og arfgerð. Allir menn hafa sameiginlegt eðli: þeir eru allir af einni tegund, og það er arfgerðin sem tryggir að tegundareinkennin komi fram í hverjum mannlegum einstak- lingi. Ef einhver póstmódernisti vildi neita þessu væri hann kjáni sem ástæðulaust væri að eiga frekari orðastað við. Og ef Kristján heldur að þessi manneðlishugmynd geti gegnt einhverju siðferðilegu hlutverki, til dæmis skotið stoðum undir mannréttindi, þá er hann líka kjáni. Einn kosturinn til að skilja manneðlið er kannski sá, sem Kristján nefnir, að sumar „dýpstu ... geðshræringar, langanir og þarfir mannsins séu hinar sömu í öllum samfélögum á öllum tímum.“19 Þetta er myrkt. Hvað er djúpt og hvað er grunnt? Er hungur djúpt? Kynhvöt? Er það óeðli af fanga að svelta sig til bana eða af munki að reyna að uppræta kynhvöt sína? Segjum að Krist- jáni tækist að finna einhverja djúpa geðshræringu sem allir menn á öllum tímum mundu kannast við þegar könnunin væri gerð. Við skulum segja að hún sé bara tilhlökkun því kannski hlakka allir til þess að vera lausir við könnuðinn sem hringir til að yfirheyra þá um djúpar geðshræringar. Hvers vegna í ósköpunum skyldi þessi sammannlega tilhlökkun vera til marks um manneðlið? Næstum allir menn fæðast með tvo fætur, en jafnvel Aristóteles með alla sína eðlistrú lét ekki hvarfla að sér að þar væri kominn hluti af manneðlinu. Eðlistrú Kristjáns er ósönnuð með öllu. En andstaðan við hana er studd prýðilegum rökum. Þá kemur að því að póstmódernistar vísa að sögn Kristjáns heildar- skýringum og draumalöndum (útópíum) á bug. Halldór Kiljan Laxness varði þrjátíu árum til að hafna öllum „úníversalteóríum" og útópíum. Meðal annars skrifaði hann ágætar skáldsögur um þessi efni. Ég vissi ekki fyrr en ég 122 www.mm.is TMM 1998:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.