Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Page 133
PÓSTMÓDERN1SMI SEM HEIMSPEKILEGT HUGTAK
Lyotards. Lyotard á, hvort sem það var ætlun hans eða ekki, stærstan þátt í að
hafa sett gagnrýni á skynsemishyggju í anda upplýsingar undir þann fræða-
hatt sem við köllum póstmódernisma.
2. Á grundvelli ofannefndrar umfjöllunar mun ég í öðru lagi kanna af-
stöðu póstmódernisma til eins tiltekins þáttar í gagnrýni á hugmyndir skyn-
semishyggjunnar um sjálfsveruna sem sjálfráða skynsemisveru. Ég mun fyrst
sýna fram á að hugmyndir hins sterka afbrigðis póstmódernisma um „dauða
sjálfsverunnar“ - en til dæmis um það reifa ég kenningu Judith Butlers um
mótun og skilyrðingu sjálfsverunnar - leiði til þess að við segjum skilið við
siðferðilegar og pólitískar hugsjónir upplýsingarinnar. Boðun „dauða sjálfs-
verunnar" merkir niðurrif hugmynda upplýsingarinnar um hina sjálfráðu
skynsemisveru. Slíkar hugmyndir um sjálfsveruna eru enn sem fyrr
ómissandi grundvöllur hugsjóna samtímans um lýðræði er byggir á rétti og
frelsi einstaklinga til sjálfsákvörðunar. Að þessu loknu mun ég leiða rök að
því hvernig póstmódernísk gagnrýni sjálfsverunnar gefur tilefni til að leið-
rétta hefðbundnar hugmyndir upplýsingarheimspeki um sjálfsveruna og
skoða hana á nútímalegri forsendum. Flóknari sýn á samhengi og aðstæður
sjálfsverunnar sem hin póstmóderníska gagnrýni getur af sér er forsenda
fyrir mismunarnæmum jafnréttishugtökum sem fullnægja réttlætishug-
myndum upplýsingarinnar.
Þetta eina dæmi sýnir að póstmódernismi í heimspeki er hvatning til end-
urmats og endurnýjunar grundvallar viðmiða módernískrar heimspeki. En
áður en lengra er haldið er rétt að gera stuttlega grein fyrir hvernig best megi
túlka merkingu módernisma, upplýsingar og póstmódernisma í heimspeki-
legu samhengi.
Upplýsing, módernismi, póstmódemismi
Til þess að unnt sé að skilgreina póstmódernisma sem heimspekilegt hugtak
er óhjákvæmilegt að gera grein fyrir módernisma, enda gefur forskeytið
„póst“ til kynna eitthvað sem kemur á eftir módernisma.
I heimspeki er póstmódernismi ekki skilinn sem sögulegt tímabil sem tek-
ur við af módernismanum. Lyotard leggur áherslu á að póstmódernismi sé
hugarástand sem lýsir tíðaranda og menningarástandi samtímans. Túlkun
rita hans um póstmódernisma hefur engu að síður átt mestan þátt í því að
yfirstandandi aldarlok hafa verið auðkennd sem póstmódernískir tímar.
Módernismi er heldur ekki tímabil, eins og t.d. upplýsingin sem sagnfræði-
lega skilgreint tímabil. Lítum fyrst á orðið sjálft. Hugtakið „móderne“ kom
fram í latínu á miðöldum til að skilgreina það sem er „einmitt núna“, sem
merkir samtímann, þ.e. tímann sem við lifum einmitt núna. Okkur er hins
TMM 1998:3
www.mm.is
131