Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Side 135

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Side 135
PÓSTMÓDERNISMI SEM HEIMSPEKILEGT HUGTAK upplýsingarinnar. Framþróun upplýsingarinnar kallar að mati Lyotards á leiðréttingu og útvíkkun siðferðilegra, fræðilegra og listfræðilegra viðmiða og lögmála upplýsingarinnar. Lyotard telur sig vera að árétta hugsjónir hennar í ljósi breyttra aðstæðna í kjölfar framþróunar tækni og vísinda. Það er löngu tímabært að orða samband upplýsingar og raunveruleika á nýjan leik. Lyotard gerir breyttar kringumstæður að umræðuefni í bók sinni um hið póstmóderníska ástand og fjallar um póstmódernísk skilyrði þekkingar. Að mati hans öðlast þekking aðra merkingu á tímum síðkapitalisma og eða síðiðnvæðingar, þ.e. í tækni-, tölvu-, upplýsinga og margmiðlunarsamfélag- inu. Þekking er nú undirorpin alræði upplýsingaþjóðfélagsins. Miðlun upplýsinga er stjórnað af þeim sem ráða ríkjum í íjölmiðlaheiminum. Nietzsche og Foucault: Þekking og vald Kenning Lyotards um að þekking geti ekki lengur verið hlutlaus, heldur hljóti henni ævinlega að vera stjórnað sýnir að hann er bundinn skynsemis- gagnrýni þeirri sem Friedrich Nietzsche er talinn frumkvöðull að (þótt hún eigi sér lengri forsögu). Póstmódernískar kenningar eru jafnan raktar til heimspeki hans og hann talinn fáðir póstmódernisma. Skynsemisgagnrýni Nietzsches er reist á þeirri forsendu að þekking og skynsemi geti aldrei verið óhlutdrægar og einhlítar eins og hin kantíska heimspeki eða heimspeki upplýsingar gerir ráð fyrir. Þekking er alltaf afsprengi sérhagsmuna. Þessi skoðun á rætur í kenningu Nietzsches um lífs- viljann eða viljann til valds eins og hann kallaði hann. Samkvæmt viljakenn- ingunni er öll söguleg og menningarleg þróun ekki annað en afrakstur viljabaráttu. í menningunni og samfélaginu takast á ólíkir viljar, það á sér með öðrum orðum stað hagsmunabarátta, þar sem hver reynir með sínum hætti að gera eigin túlkun á raunveruleikanum, túlkun sem samræmist eig- inhagsmunasjónarmiðum, gildandi. Habermas tekur undir þessa sýn í bók sinni Erkenntnis und Interesse (Þekking og hagsmunir), án þess þó að smætta sannleika og þekkingu alfarið niður í sérhagsmuni þar sem hann heldur enn í hina kantísku hugmynd um möguleika óhlutdrægra skynsemisviðmiða.7 Að dómi Nietzsches og Foucaults er aftur á móti ekki til sá sannleikur sem er hafinn upp yfir eiginhagsmunasjónarmið valds. Oftrú á skynsemi í upp- lýsingarheimspeki er leyst af hólmi með vantrú á skynsemi á þann hátt að skynsemi er afhjúpuð sem sérhagsmunir. Þar með er leiðin opnuð fyrir afstæði sannleika og þekkingar. En eins og áður sagði snýst deilan um módernisma og póstmódernisma um algildishæfi og afstæði sannleiks- og þekkingarviðmiða. Foucault byggir hina sifjaffæðilegu gagnrýni sína á kenningum Nietzsches TMM 1998:3 www.mm.is 133
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.