Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1998, Side 87

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1998, Side 87
GUÐMUNDUR FRÍMANN vættatrú, sem birtast í verkum þessara þriggja skálda mitt í nútímanum? Það er annars merkilegt hvað þröng og lítil sveit getur rúmað mikið af heiminum í höndum góðra skálda - samanber sjálfan „nafla alheimsins" í verkum Williams Heinesen. Sáralítið hefur verið skrifað um skáldskap Guðmundar Frímanns. Þar stendur upp úr ritgerð Jakobs Kristinssonar í Eimreiðinni. Jakob Kristinsson - hver man eftir honum? Hann var vinur Þórbergs, og einn af okkar bestu ritgerðasmiðum á öldinni. Þórbergur sagði um hann að hann væri gáfaðasti maður sem hann hefði hitt. Og hvað sem slíkum ummælum líður var Jakob nógu glöggskyggn til að meta verðleika Guðmundar af réttsýni meðan hann var enn að verki - nokkuð sem ritskýrendum hefur oft reynst erfitt. Hitt er einfaldara, að taka ritverk manna eftir á og fjalla um þau. Fyrsta ljóðakver Guðmundar kom út árið 1922, þegar hann var 19 ára, og hét Náttsólir. Þetta var árinu áður en vinur hans Magnús Ásgeirsson gaf út sín fýrstu ljóð, frumort og þýdd. Guðmundur vildi lítið við þessi æskuljóð kannast síðar, og aðeins eitt kvæði var tekið úr bókinni í úrval ljóða hans seinna meir. Einum ellefu árum síðar gefur hann út Úlfablóð, undir dulnefn- inu Álfur frá Klettstíu. Þar er þegar tekið að marka fyrir helstu höfundarein- kennum Guðmundar, og satt að segja einkennilegt að hann skuli einmitt þá velja dulnefni, sem hann notaði ekki í annan tíma. 1937 kemur Störin syngur, mun fyllri og sterkari bók en hinar tvær, hann stígur þar fyrst fram sem fullþroska höfundur. Svo líða 14 ár, þar til næsta bók hans kemur, Svört verða sólskin. Þessi bók vakti talsverða athygli, og að verðleikum, því hún er sérstæð um margt. I henni er þó tregi og drungi sem verður full eintóna í jafn stórri bók; hún er á annað hundrað síður. Dapurleikinn er næstum yfirþyrmandi í lokin. En meðferð hans á kveðskaparforminu er nánast lýtalaus. Síðan kem- ur hans langbesta Ijóðabók fáeinum árum síðar; Söngvarfrá Sumarengjum. Og útfrá hvaða sjónarmiði er hún „langbest“? Tök hans á forminu eru enn styrkari, en mest um vert er að ákveðið jafnvægi ríkir í tóninum - blænum, án þess að nokkurt skapleysi komi til. Hann fer dýpra undir yfirborðið, og kemur upp með meiri birtu. Einsog áður segir er ákveðinn skyldleiki í kvæð- um Guðmundar Frímanns og nafna hans úr Hvítársíðunni, en þó heldur hvor sínu og að ýmsu leyti eru þeir ólíkir menn og skáld. Kannski liggja lík- indin helst í svipuðum uppruna og þessari „mystísku“ afstöðu til lands og gróðurs. Síðasta ljóðabók frá hans hendi í langan tíma er svo fyrrgreind þýðingabók hans; Undir bergmálsfjöllum. Eftir þessa röð ljóðabóka söðlar hann um og tekur til við sagnagerðina. Hann endaði kveðskapartímabilið á þýðingum, en hefur þetta nýja tímabil á þýðingum sem áður er getið; Ástaraugun 1959. Á eftir Svartárdalssólinni og Rauðu sortulyngi, kemur skáldsagan um stúlkuna úr Svartaskógi, og árið TMM 1998:4 www.mm.is 85
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.