Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 74

Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 74
Náttúrufræðingurinn 74 staðfestingu á aðalskipulagi Leir- ár- og Melahrepps 2002–2014, synj- aði umhverfisráðherra staðfestingu þess hluta aðalskipulagsins er varð- aði vegarlagningu yfir Grunnafjörð en staðfesti aðalskipulagið að öðru leyti. Sama dag var bréf sent Hval- fjarðarsveit þar sem fram kom að Skipulagsstofnun legðist gegn stað- festingu þess hluta skipulagsins sem varðaði veg yfir Grunnafjörð. Einn- ig kemur fram í bréfi ráðherra að Umhverfisstofnun hafi gert athuga- semdir við auglýsta tillögu að að- alskipulagi og lagst gegn fyrirhug- aðri vegarlagningu yfir Grunnafjörð, m.a. á þeim forsendum að svæð- ið væri eitt mikilvægasta votlend- issvæði landsins og jafnframt við- urkennt Ramsarsvæði. Þar að auki hafi stofnunin ekki veitt undanþágu til vegarlagningar sem þó var mögu- legt að veita samkvæmt ákvæðum friðlýsingarinnar. Þar sem í staðfest- ingarhlutverki umhverfisráðherra felst athugun á lögmæti viðkomandi tillögu var umræddum hluta að- alskipulagsins synjað staðfestingar. Í þessu tilviki hefði væntanlega verið mögulegt að breyta mörkum hins friðlýsta svæðis og í framhaldi af því að staðfesta aðalskipulagið í heild sinni. Hins vegar var það ekki gert og friðun svæðisins virt. Umræða og lokaorð Markmið greinarinnar var að kynna þau sjónarmið sem samningsaðilar Ramsarsamningsins hafa samþykkt með ályktun aðila nr. VIII.20 frá 2002 en þau ber að leggja til grundvallar þegar metnir eru brýnir þjóðhags- munir, þ.e. hagsmunir sem Ramsar- samningurinn viðurkennir að geti réttlætt að mörkum Ramsarsvæðis sé breytt eða þau felld niður. Til þess að skapa ákveðinn bakgrunn var helstu skuldbindingum samn- ingsaðila Ramsarsamningsins lýst. Þar á eftir var fjallað um ályktun samningsaðila nr. VIII.20 frá 2002 en tilgangur hennar er m.a. að skýra efni 5. mgr. 2. gr. og 2. mgr. 4. gr. Ramsarsamningsins til að auðvelda framkvæmd samningsins. Þessi umfjöllun var m.a. sett í samhengi við ákveðna þróun sem hefur orðið í þjóðarétti á undanförnum árum, sérstaklega í alþjóðlegum umhverfis- rétti. Hún lýtur að auknum heim- ildum aðila viðkomandi samninga til þess að taka ákvarðanir sem lúta að samningunum sjálfum og fram- kvæmd hans. Ramsarsamningurinn hefur t.a.m. þróast með þessum hætti. Það sem veldur þó óvissu eru réttaráhrif þessara ákvarðana. Komist var að þeirri niðurstöðu að sú ályktun sem hér um ræðir endurspegli ekki lagalega skyldu að þjóðarétti, þótt efni hennar sem slíkt rúmist innan þeirra heimilda sem þingi aðila eru fengnar samkvæmt f-lið 6. gr. samningsins. Þessi niður- staða ræðst fyrst og fremst af orða- lagi ályktunarinnar sjálfrar en þar eru ríki hvött til þess að fylgja efni hennar og sérstaklega tekið fram að mat á hagsmunum sé alfarið rík- isins. Hins vegar verður að telja rétt að efni ákvörðunarinnar sé skoðað sérstaklega og innleitt í lög en það virðist ekki hafa verið gert hér á landi. Innleiðing auðveldar ákvarð- anatöku kæmi til þess að breyta yrði mörkum Ramsarsvæðis og stuðlar auk þess að gagnsæi réttarins og réttaröryggi. Hvað varðar viðmiðin í ályktun nr. VIII.20 var komist að þeirri niðurstöðu að við mat á brýn- um þjóðhagsmunum beri að gera kerf- isbundið heildstætt mat og að það skuli fara fram áður en ákvörðun um að breyta eða fella niður mörk Ramsarsvæðis er tekin. Í ályktun nr. VIII.20 er einnig gert ráð fyrir að ákvarðanataka byggist á varúðar- reglu. Vikið var að þeim breytingum sem hafa verið gerðar á lagalegri verndun Ramsarsvæðisins Mývatns og Laxár í samræmi við ákvæði laga nr. 97/2004 en mörkum Ramsar- svæðisins hefur ekki verið formlega breytt. Komist var að þeirri niður- stöðu að breytingin á gildissviði Mývatns og Laxársvæðisins, sbr. ákvæði laga nr. 97/2004, gæfi tilefni til þess að efast um hvort lagaleg verndun Ramsarsvæðisins uppfylli nú viðeigandi ákvæði Ramsarsamn- ingsins. Síðan var vikið nokkrum orðum að réttarframkvæmd hér á landi en fyrirliggjandi eru nokkur dæmi þess að mörkum friðlanda hafi verið breytt eða þau felld niður. Fjallað var um nýleg dæmi sem eiga það sammerkt að ekki virðist hafa farið fram neitt raunverulegt mat á umhverfis- og náttúruverndarhags- mununum áður en ákvörðun var tekin. Loks var fjallað um nýlega ákvörðun umhverfisráðherra um að synja staðfestingu á þeim hluta aðal- skipulags Leirár- og Melahrepps 2002–2014 sem varðar vegarlagn- ingu yfir Grunnafjörð en hann er friðlýstur samkvæmt lögum nr. 44/1999 og er einnig viðurkennt Ramsarsvæði. Ekki reyndi á raun- verulegt hagsmunamat í þessu til- viki þar sem lagaskilyrði til að stað- festa skipulagið vegna þessa hluta voru ekki til staðar. Eins og nefnt var í upphafi greinarinnar inniheld- ur íslenskur réttur engar sérstakar reglur um hvort eða hvernig mörk- um friðlanda, þ.m.t. mörkum Rams- arsvæða, verður breytt eða þau felld niður, né heldur hvaða forsendur beri að leggja til grundvallar slíkum breytingum. Þótt komist hafi verið að þeirri niðurstöðu að ályktun nr. VIII.20 feli ekki í sér bindandi skuld- bindingu að þjóðarétti ber samnings- aðilum Ramsarsamningsins samt sem áður að innleiða efni hennar. Innleiðing er nauðsynleg til að auka fyrirsjáanleika réttarins og réttar- öryggi og ekki síður til að tryggja að markmiðum Ramsarsamningsins verði náð. Um höfundinn Aðalheiður Jóhannsdóttir (f. 1957) er prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Hún lauk emb- ættisprófi í lögfræði (cand. jur.) frá lagadeild Háskóla Íslands 1991 og doktorsprófi (dr. jur.) frá lagadeild Uppsala- háskóla vorið 2009. Aðalheiður vann um árabil í umhverfisráðu- neytinu og einnig hjá Náttúruverndarráði og Náttúruvernd ríkisins. Póstfang höfundar Aðalheiður Jóhannsdóttir Lagadeild Háskóla Íslands Lögbergi v/Sæmundargötu IS-101 Reykjavik ally@hi.is 79 1-4#loka.indd 74 4/14/10 8:50:39 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.