Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2000, Blaðsíða 18
Rósa B. Blöndals
ganga í myrkri, heldur hafa ljós lífsins“ (Jóh. K. 8, 5. Vers). Ekkert gleður
mennina, eins og ljós í myrkri. Frelsarinn er Ijósið sem kom inn í lífmann-
anna. Frelsarinn er einn fær um að hugga syrgjendur. Loforð hans stendur.
Síra Valdimar Briem fæddist 1. febrúar 1848, að Grund í Eyjafirði. Hann var
sonur Olafs Briem, timburmeistara og alþingismanns að Grund í Eyjafirði,
sem 8 glugghús reisti (þ.e. kirkjur), og Dómhildar Þorsteinsdóttur konu hans
frá Stokkahlöðum í Eyjafirði.
Bræður Ólafs, timburmeistara og föðurbræður síra Valdimars voru m. a.
þeir Eggert Ólafur Briem sýslumaður, faðir Eiríks Briem prófessors og þeirra
systkina, og Jóhann Kristján Briem prófastur í Hruna, Árnessýslu. Foreldrar
þeirra voru Gunnlaugur Guðbrandsson Briem (1773-1834), fyrrum sýslumað-
ur að Grund í Eyjafirði og kona hans Valgerður Briem. Gunnlaugur tók upp
ættarnafnið Briem á skólaárum sínum í Kaupmannahöfn. Ástæðan fyrir ætt-
arnafninu Briem er sú, að faðir Gunnlaugs, síra Guðbrandur Sigurðsson
(1735-1779) var prestur á Brjánslæk á Barðaströnd. Tók Gunnlaugur upp
nafnið eftir nafni staðarins. Faðir Guðbrandar, Sigurður Þórðarson, prestur
(1688-1767), var talinn andríkur kennimaður og skáldmæltur. Sálmar eftir
hann eru prentaðir í Daglegu kvöld- og morgunoffri (Hólum 1780). Þýðing-
ar eftir hann í handriti. Kona hans var Sigríður Gunnlaugsdóttir, bónda í
Svefneyjum. Hún var fædd uml693. Kona Guðbrandar, var Sigríður Jónsdótt-
ir, prests á Gilsbakka. Hún lést 1835.
Gunnlaugur Guðbrandsson Brienr kvæntist þann 21. júní 1800 Valgerði
Árnadóttur, er fædd var um jól 1779, d. 25. júlí 1872. Húsfreyja að Grund í
Eyjafirði. Faðir hennar var Árni Sigurðsson, prestur (1732-1805), síðast að
Holti undir Eyjafjöllum, móðir hennar Kristín Jakobsdóttir (1743—1791). Jak-
ob var útvegsbóndi að Búðum (1708-1767). Kona hans var Guðrún Jónsdótt-
ir (1699-1784), prests (1663-1735) Jónssonar m.a. að Staðarstað og prófasts
á Snæfellsnesi.1
Er öll sú ætt vel kunn. Gunnlaugur Guðbrandsson Briem stundaði m.a. list-
nám, í höggmyndasmíði um árabil með Thorvaldsen í Kaupmannahöfn og út-
skrifaðist þaðan eftir sex ár, með góðum vitnisburði. Urðu þeir Thorvaldsen
vinir ævilangt. Gunnlaugur tók próf í dönskum lögum, í Kaupmannahöfn, árið
1797, „examinatus juris,“ með I. einkunn. Hann varð kammersekretarí 1804,
I Upplýsingar teknar frá Briemsœtt II. bls. 569-601.