Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2000, Blaðsíða 84
Rósa B. Blöndals
aldrei birst og eru því aðeins til í handritum. Þar á meðal munu vera mörg
kvæði, sem síra Valdimar orti á æskudögum.
Einnig má sjá greinargerð um verk síra Valdimars Briem í Guðfræðinga-
tali 1847-1957.
Síra Valdimar skrifaði í mörg blöð og tímarit, þó einkum væru það rit, sem
fjölluðu um trúarlegt efni. Hér verða nefnd aftur nokkur þeirra tímarita er birtu
ritverk séra Valdimars og efni um hann: Almanak Þjóðvinafélagsins, nokkr-
ar árbækur, Ljósberinn, Kirkjublaðið (Kbi), Nýtt kirkjublað (N.Kbl), Verði
Ijós, Bjarmi, Dagskráin, Eimreiðin, Fjallkonan, Frcekorn, Isafold, Lögrétta,
Óðinn, Prestafélagsritið og Þjóðólfur á íslandi og fyrir vestan haf voru það
Aldamót, Breiðablik, Lögberg, Kennarinn og Sameiningin. Óhemju mikið efni
af skáldverkum og einnig nokkuð af öðru ritefni, liggur eftir síra Valdimar í
Vesturheimi, sem aldrei hefur verið gefið út á íslandi. Mikið af því efni gerði
hann eftir beiðni og nauðsyn landa sinna vestan hafs. Einnig var hann marg-
sinnis beðinn um ljóð og sálma í tímarit er gefin voru út á íslandi og er þar
skemmst að minnast þess er hann orti eitt slíkt ljóð fyrir tímaritið Verði Ijós,
(mánaðarrit fyrir kristindóm og kristilegan fróðleik). Ljóðið birtist á fyrstu
síðu fyrsta eintaks, er út kom þá er tímaritið Verði ljós hóf göngu sína. Síra
Valdimar var því sérstaklega fenginn til þess að yrkja ljóð í því merka tilefni.
Þá orti hann kvæðið Verði Ijós, og bar tímaritið nafn ljóðsins. Fyrsta tölublaðið
kom út í janúar árið 1896.
Verði Ijós
Verði ljós í voru landi,
villimyrkrið hverfi svart.
Kveiki Guð í kirkju sinni
kristindómsins ljósið bjart,
Kuldinn, svefninn, dimman, dauðinn
dvíni fyrir geislum hans.
Ylinn, fjörið, ljósið, lífið
lífgi kraftur sannleikans.
Verði ljós í hverju húsi,
hvergi beri skugga á.
Ljósið Drottins lífsins orða
ljómi hverjum arni hjá.
Skyggi, kólni, skúri, næði,
skín þó blessað ljósið hans.
Lýsi, vermi, hýrgi, hlúi
himneskt lífsorð kærleikans.
82