Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2000, Blaðsíða 181
Byskupskjör á íslandi
stæðingi Haukdæla. Það er ekki aðeins Hólastóll sem er sprottinn úr Skálholts-
stól, byskupinn er andlegur afkomandi byskupsins þar. Hann er einnig tengd-
ur Oddaverjum. Þeir Sæmundur eru vinir og jafnaldra, eins konar postular og
„stólpar kristninnar".39
Næsti byskup á Hólum er Ketill Þorsteinsson, tengdasonur Gissurar ís-
leifssonar og bræðrungur Sæmundar. Hungurvaka greinir skilmerkilega frá
tengdum Ketils við Gissur og leggur áherslu á gott samband þeirra Þorláks
Runólfssonar sem einnig sést í samstarfi þeirra og Sæmundar við gerð íslend-
ingabókar.40 Góð samskipti stólanna endurspegla tengsl Ketils við Haukdæla-
og Oddaverjaklíkuna.41 Þá tekur við Björn Gilsson sem virðist sjálfstæðari
gagnvart valdaklíkunni fyrir sunnan, a.m.k. í kjöri Klængs. Þegar betur er gáð
reynist hann vera þremenningur við Þorlák Runólfsson og það sem meira er:
í Jónssögu kemur fram að Björn var lærisveinn Teits ísleifssonar í Haukadal
áður en hann lærði á Hólum hjá Jóni helga.42 Það er því engin ástæða að ætla
annað en að samskipti hans við Oddaverja- og Haukdælaklíkuna hafi verið
góð, a.m.k. eftir að þeir tóku Klæng í sátt, en þögn Hungurvöku um tengsl
Bjöms við þessar ættir gæti bent til að Jóni og Gissuri hafi þótt tök sín á Hóla-
stól of veik og Bjöm fullráðríkur.
Hungurvaka er eðli málsins samkvæmt fáorð um Hólabyskupsdæmi og hið
sama gildir um þær sögur Sturlungusafnsins sem gerast á 12. öld. Kjöri bysk-
upanna Bjarnar Gilssonar og Brands Sæmundarsonar er þannig hvergi lýst að
ráði og allar ályktanir um hvernig staðið var að því verða getgátur einar. Þó
er eins og Hungurvaka ýi að því að títtnefnd valdaklíka hafi komið nálægt
kjöri Brands Sæmundarsonar:
En um sumarit eptir var kprinn Brandr prestr Sæmundarson, ok hafði hann útan
með sér bréf Klœngs byskups á fund Eysteins erkibyskups, ok var hann vígðr til
byskups Máríumessu dag hinn síðara, ok var í Bjprgvin um vetrinn ok svá Jón
Loptsson.43
Þó að það hljómi eins og samsæriskenning að telja nærveru Jóns Loftssonar
eina sanna að Oddaverja- og Haukdælaklíkan hafi komið Brandi í byskups-
stól hlýtur að teljast einkennilegt að Hungurvaka nefni veru Jóns í Björgvin
39 Jónssaga, 153-4, 157, 218-20, 227.
40 Hungrvaka, 89 og 95. íslendingabók, 3.
41 í Þorgils sögu og Hafliða (Sturlunga saga I, 47-8) er ekkert gert úr þeim tengslum en Haf-
liða Mássyni eignað kjör Ketils. Þar er um mun yngra rit að ræða (Jón Jóhannesson. Um
Sturlunga sögu, xxiv) sem er að mörgu leyti óáreiðanleg heimild um stjómmál 12. aldar.
42 Jónssaga, 153, 168, 219, 241.
43 Hungrvaka, 111.
179