Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2000, Blaðsíða 56
Rósa B. Blöndals
félagið og sem dæmi nefndi Guðjón það að fyrir eitthvað af því fé er Einar
greiddi til hreppsins, hefðu þeir byggt fyrsta heimavistarskóla á landinu, Ása-
skóla.
Dómar Stephans G. Stephanssonar og Einars Benediktssonar, sýna hve
varlega má treysta óvinveittum ritdómi, ekki síst þegar skáld ræðst á annað
skáld með skarpri tungu.
Líklegt má telja, að hinir ósanngjörnu ritdómar hafi sært höfund Biblíu-
ljóðanna, þótt ekki léti hann á því bera. Síra Valdimar erfði það greinilega ekki
við þá sem skrifuðu á móti honum og gagnrýndu hann. Gott dæmi um það er,
þegar hann vitnar í ummæli Einars Benediktssonar í grein sinni um síra Matth-
ías látinn.
Enn mætti nefna leikritið „Brand,“ eftir Henrik Ibsen.
Um það rit og þýðing þess læt ég mér nægja að tilgreina ummæli Einars skálds
Benediktssonar í grein um Ibsen (í Skírni 1906): „Skáldfaðir vor, séra Matthías,
hefir eftir eðli sínu og trúarþrá þar hið bezta viðfangsefni, og í ýmsum köflum
ritsins hefir hann lagt meistarahönd á frumritið.
Annað gott dæmi um það hversu síra Valdimar mat Einar Bendediktsson
mikils, sést á erindi því er hann tileinkaði Einari í skáldadrápunni Tíbrá.
Hafið dimmblátt horfi ég yfir,
háa boða að sjá og skoða.
Köld og þung er undiralda,
undarlega kyr þó stundum.
Margt býr djúpt í duldum sorta,
drottnar auðiir á mararbotni.
Hjúpaður um í huldu dýpi
hreinar munu perlur leynast.
Sannleikurinn er sá, að vöndun er mjög mikil í Biblíuljóðum síra Valdimars
og undrun mætti vekja hve vel hefur tekist það ofurverk að snúa báðum testa-
mentunum í ljóð. Eftir þessa dóma um Biblíuljóðin, hnýttu margir í þau, þótt
þeir hefðu aldrei lesið þau, í hæsta lagi séð kjölinn á bókunum. Menn töldu
óhætt að treysta neikvæðum dómum skálda um Biblíuljóðin, þar að auki hafa
ýmsir, sem lásu ljóðin, áreiðanlega lesið þau með öðru hugarfari heldur en,
ef bækurnar hefðu eingöngu fengið góðan, sanngjarnan dóm.
í febrúarhefti tímaritsins Verði Ijós árið 1899, skrifar útgefandi tímarits-
ins, Jón Helgason, Prestaskólakennari, eftirfarandi:
Séra Valdimars Briem er loflega getið nýlega í einu af bestu tímaritum skozku
54