Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2000, Blaðsíða 85
Trúarskáld
Verði ljós í hverju hjarta.
Heimsins ljósið, frelsarinn,
úti byrgi hret og hríðir,
hleypi sínum geislum inn.
Efinn, kvíðinn, óttinn, sorgin
inn ei komast þá til manns.
Trúin, vonin, traustið, gleðin
tendra ljós í brjósti hans.
Síra Valdimar Briem hafði augljóslega mikinn áhuga á að efla hag landa
sinna vestan hafs, bæði trúarlíf þeirra, starfssvið kirkju þeirra og eins að efla
samskipti þeirra við íslensku þjóðkirkjuna. Auk allra þeirra fögru skáldverka
er síra Valdimar orti fyrir landa sína vestra, þá orti síra Eggert Briem, bróð-
ir hans einnig marga fagra sálma, er birtust vestan hafs. Þrjú systkini þeirra
bræðra settust að í Kanada, eins og fyrr er getið og áreiðanlega hefir hið mikla
starf, bræðra þeirra Jakobs, og Jóhanns Briem, aukið enn á skilning síra Valdi-
mars fyrir þörfum og nauðsyn þess að Islendingar á heimalandinu sýndu lönd-
um sínum vestan hafs fullan skilning og bróðurhug í verki. Þá er og auðséð
að vinsældir síra Valdimars aukast gífurlega um og upp úr 1890, eftir að
sálmabókin frá árinu 1886 hefir náð hylli manna vestan hafs og einstök ljóð
úr Biblíuljóðunum fara að ná miklum vinsældum. Þá bregst síra Valdimar vel
við og finnur til ábyrgðar gagnvart hinum trúarlegu tímaritum beggja vegna
hafsins, þegar það verður staðreynd að blöðin seldust margfalt betur ef sálm-
ur eða trúarljóð eftir síra Valdimar Briem skreytti forsíðu þeirra. Ekki meg-
um við heldur gleyma því að hin trúarlegu tímarit þeirra tíma seldust meðal
íslendinga báðum megin Atlantshafsins jöfnum höndum.
Síðast en ekki síst ber að minnast þess að fornvinur síra Valdimars og fé-
lagsbróðir úr Kvöldfélaginu frá æskuárunum í Reykjavík, síra Jón Bjarnason,
var um þessar mundir ritstjóri Sameiningarinnar. Rétt er að minnast ljóðs er
síra Valdimar sendir til síra Jóns Bjarnasonar í N. kbl. í júní 1910.
1. erindi, af 8 erindum:
Vor kæri bardagabróðir!
þér bróðurhönd réttum vér.
Þótt vinanna margt sé milli,
vér munum þó eftir þér.
83