Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2000, Blaðsíða 49
Trúarskáld
Svo miklu betra þótti að læra ljóð en laust mál á þeim dögum, að árið 1906
setti síra Valdimar barnalærdóm til fermingar á bundið mál. Barnalærdóms
kver, Kristin barnafræði í Ijóðum. Almennt kallað - Ljóðakverið. -
Á bls. I.-IV. er efnisyfirlit bókarinnar. Þá kemur efni bókarinnar alls 74
bls. Fyrsti kapítuli ber nafnið Kristileg trúarljóð. Og eru þar 20 ljóð. Annar
kapítuli ber nafnið Kristilegar lífsreglur, og eru þar 10 ljóð. Alls eru því 30
ljóð í bókinni.
í Barna-Sálmabók, sem út kom árið 1944, á síra Valdimar 32 sálma, af
107 sálmum í 96 bls. bók.
Sálmana völdu síra Árni Sigurðsson, síra Friðrik Hallgrímsson og Ás-
mundur Guðmundsson, háskólaprófessor. Bókin var endurprentuð óbreytt árið
1947, en árið 1951, var bókin gefin út á ný og þá mikið stytt. Var þá m.a. um
tíu sálmum eftir síra Valdimar, frá fyrri útgáfu sleppt úr bókinni.
Að tilhlutan biskups og æskulýðsstarfs Þjóðkirkjunnar var gefið út lítið
sálmakver, Barnasálmar, í þremur útgáfum, 1960, 1962 og 1963. í fyrstu út-
gáfu eru þrír sálmar eftir síra Valdimar en fjórir sálmar í seinni útgáfunum,
af 36 sálmum. Fyrsta útgáfan var gefin út að tilhlutan biskups en seinni út-
gáfur að tilhlutan æskulýðsstarfs Þjóðkirkjunnar.
Biblíuljóð
Kaþólska kirkjan tók tónlist, ljóðlist, málaralist og höggmyndalist í þjónustu
sína.
Allt frá fornöld fluttu íslensk skáld jörlum og konungum kvæði, fjallað
var um sigra þeirra í herförum og frá öðrum afrekum sagt.
Eysteinn munkur Ásgrímsson, orti kvæðið sem öll skáld vildu kveðið hafa,
það er:
Lilja
Þar segir hann: 98. erindi.
Sá, er óðinn skal vandan velja,
velr svo mörg í kvæði að selja
hulin fornyrðin, að trautt má telja,
tel eg þenna svo skilning dvelja.
Vel því - að hér má skýr orð skilja, -
skili þjóðir minn ljósan vilja, -
tal óbreytilegt veitt af vilja.
Vil eg, að kvæðið heiti LILJA.
47