Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2000, Blaðsíða 161
Konurnar í Gamla testamentinu
Sara (og Hagar)35
í upphafi 12. kafla 1. Mósebókar segir frá köllun „Abram“ (síðar Abraham,
sjá 1M 17.5) og fyrirheiti Drottins um fyrirheitna landið og fjölda afkomenda.
Ekki er minnst á Saraí (síðar Sara, sjá 1M 17.15) fyrr en í 5. versi, þar sem
segir að Abram hafi „tekið“ Saraí konu sína með sér, „og Lot bróðurson sinn
og alla fjárhluti, sem þeir höfðu eignast, og þær sálir, er þeir höfðu fengið í
Harran.“ Síðan segir: „Og þeir lögðu af stað og héldu til Kanaanslands.“ í upp-
hafi næstu efnisgreinar segir svo: „Þeir komu til Kanaanslands.“ Það er engu
líkara en Saraí hafi ekki verið með í ferðum, og hvergi er minnst á að hún
hafi verið með í ráðum eða að hún hafi verið spurð álits um eitt eða neitt. Hið
sama er uppi á teningnum síðar í 12. kafla þegar Abram og Saraí fara til
Egyptalands og þau blekkja Faraó með því að láta sem Saraí sé systir Abrams
en ekki eiginkona hans. Einnig hér er Saraí ekki spurð álits, heldur hlýðir hún
fyrirskipunum eiginmanns síns.
Það er fyrst í upphafi 16. kafla sem kastljósið beinist að Saraí. Þar segir
frá því að Saraí geti ekki eignast bam og að hún eigi egypska ambátt sem Hag-
ar heitir. Af því sem áður hefur komið fram er ljóst að þjóðfélagsstaða Saraí
er góð; hún er rík og tilheyrir góðri stétt (Abram er vel settur hirðingi), en
einnig gömul og ófær um að eiga börn.36 Þess vegna er Saraí valdamikil af
konu að vera, en án virðingar sökum barnleysisins, þar sem barnlausar kon-
ur voru fyrirlitnar eins og víða kemur fram, bæði í 1. Mósebók og öðrum bók-
um Gamla testamentisins.37 Hagar, ambátt Saraí, er andstæða hennar, fátæk
og af lágum stéttum, en ung og getur eignast böm. Sem ambátt er Hagar valda-
laus og eign húsmóður sinnar.
í upphafi 16. kafla segir Saraí við Abram, eiginmann sinn: „Heyrðu, Drott-
inn hefir varnað mér barngetnaðar. Gakk því inn til ambáttar minnar, vera má
að hún afli mér afkvæmis“ (1M 16.2). Hér eins og annars staðar er það Drott-
inn sem opnar og lokar móðurlífum.38 Drottinn hafði vissulega gefið Abram
fyriheit um fjölda afkomenda, sem ítrekað er í 15. kafla. Hins vegar hefur það
ekki komið fram hvaða leið Guð ætlar að nota, þar sem Saraí er óbyrja og
þau bæði aldurhnigin. Af orðum Saraí má ráða að hún telur ekki miklar lík-
35 Sjá umfjöllun um Söru og Hagar í: Kam, 30-44; Edith Deen: All of the Women of the Bible, 8-
16; Newsom og Ringe, 15-18; Renita Weems: Just a SisterAway. A Womanist Vision ofWomen’s
Relationships in the Bible, 1-21; Jeansonne: 14-30 og 43-52; Alice L. Laffey: An Introduction
to the Old Testament. A Feminist Perspective, 27-41.
36 Trible, Texts ofTerror, 10.
37 Sjá t.d. 1M 21 og söguna um Hönnu í 1S.
38 Sjá 25.21, þegar Rebekka verður þunguð eftir að ísak biður Guð fyrir konu sinni, og 30.22, en
þar segir: „Þá minntist Guð Rakelar og bænheyrði hana og opnaði móðurlíf hennar“.
159