Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2000, Blaðsíða 133
Valdimar Briem
En ekki kæmi mér á óvart, þótt hlutur hans yrði aukinn fremur en hitt síð-
ar meir, ef smekkur á trúarlega ljóðagerð sýkist ekki til bana eða tapast með
öllu í vindgangi formleysunnar og glymjandans.
Hvernig sem fara kann um það er mark hans á núgildandi Sálmabók ótví-
rætt. Hún á engum meira að þakka en honum. Ef allt væri horfið þaðan, sem
er eftir hann, væri sú sálmabók ekki hæf til sinna nota lengur. En þótt allt væri
horfið, sem er ekki eftir hann, ættum vér samt sálmabók, sem væri viðhlít-
andi til nota við almennar guðsþjónustur á helgum dögum og við kirkjuleg-
ar athafnir. Eyður væru þar að sjálfsögðu, en úr þeim mætti bæta furðu vel
með sálmum eftir hann. En að verulegu leyti væri slík bók æði vel búin og
fallin til hlutverks síns.
Hér var bent á það, sem gerir sr. Valdimar ósambærilegan við alla aðra
sálmahöfunda vora. Þarna er hann í öndvegi meðal þeirra. Og ófáir sálmar
hans eru meðal mestu gersema sinnar tegundar og verður ekki þokað úr æðsta
sessi meðan kristni og íslensk tunga og annað vit helst óbrjálað í þessu landi.
Nokkrir kunnustu og mestu sálmar hans hafa verið nefndir í þessu máli.
Mörgum má við bæta, eins og allir kunnugir vita. Hér skal aðeins bent á þessa
úrvalssálma:
Guð, allur heimur eins í lágu og háu (Sb.nr. 20)
í fornöld á jörðu var frækorni sáð (Sb. nr. 302)
Sannleikans andi, lát sannleikans ljós þitt oss skína (Sb.nr. 331)
Þinn andi, Guð, til Jesú Krists mig kalli (Sb.nr. 332)
Mitt höfuð, Guð, ég hneigi (Sb. nr. 338)
Þú, Guð, sem stýrir stjarna her (Sb.nr. 357).
Sálmar hans út frá guðspjöllum sunnudaganna (fyrsta guðspjalli hvers
sunnudags, skv. núgildandi tíðareglu) eru margir trúarleg meistaraverk og all-
ir góðir. Rökin fyrir því mati bið ég menn að kanna með því að finna þessa
sálma í Sálmabókinni og lesa þá og um leið þau guðspjöll, sem þeir eru tengd-
ir:
Nr. 57 (Matt. 21, 1-9), 62 (Luk. 21, 25-33), 110 (Matt. 2,1-12), 112 (Luk. 2,41-
52), 115 (Matt. 8, 1-13), 116 (Matt. 8, 23-27), 117 (Matt.13, 24-30), 119 (Matt.
17, 1-9), 120 (Matt. 20, 1-16), 122 (Matt. 3,13-17), 159 (Jóh. 20,19-31), 162 (Jóh.
16,5-15), 163 ( Jóh. 16,23-30), 167 (Mark. 16, 14-20), 177, (Jóh. 3, 16-21), 178
(Jóh. 3,1-15), 179 ( Lúk. 16,19-31). 181 (Lúk.15, 1-10), 183 (Matt. 5, 20-26), 189
( Lúk. 18,9-14), 190 ( Mark. 7,31-37), 191 (Lúk. 10,23-37), 192 ( Lúk.17,11-19),
199 (Jóh.4,46-54), 2ol (Matt. 5, 1-12), 2o8 ( Matt. 11, 25-30).
131