Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2000, Blaðsíða 80
Rósa B. Blöndals
Brynjólfur frá Minna-Núpi skrifaði mjög lofsamlega um ræðugerðarlist
síra Valdimars Briem1 og bætti því við að öll sóknarbörn síra Valdimars væru
honum samdóma í því efni.
Fagurlega orti síra Valdimar um Brynjólf í skáldadrápu sinni frá 1901. Fer
hér á eftir erindið er hann helgaði Brynjólfi í skáldadrápunni Tíbrá:
Undir núpi’á lágu landi
liggur dalur í skugga falinn.
Hvað er að sjá á flötum frjóum?
Fornmannshaugur blasir við augum.
Slétt er hið ytra allt að líta,
innra’ er dýran málm að finna.
Gripir fornir geymast í djúpi,
gátur huldar og rúnir duldar.
Hér skal enn vitnað í minningar Einars Jónssonar myndhöggvara:
Fólk streymdi á þessum árum til Hrepphólakirkju úr öllum áttum, til þess að
hlusta á séra Valdimar Briem, sem var dáður kennimaður og einkar höfðingleg-
ur.
Oft orti síra Valdimar í ræður sínar, eða vitnaði til ljóða er hann hafði
samið. Mjög lét hann sér annt um organleik og söng í kirkjum sínum. Þegar
sálmabókin frá 1886 kom út, þá fékk hann þrjá menn úr hvorri sókn, Hrepp-
hóla- og Stóra-Núpssóknum til að fara til Stokkseyrar til Bjarna Pálssonar,
föðurbróður Páls Isólfssonar til þess að læra hjá honum lög við nýja sálma.
Ur ræðu síra Valdimars Briem, við vígslu Jóns biskups Helgasonar þann
22. apríl 1917, er birtist í Bjarma 5. maí s.á. (1. Kor. 4-6)
Þessi orð postulans eru fá, en þó efnismikil; þau eru auðveld, en þó harla djúp;
þau eru einföld, en í þeim er þó fólginn dýrmætur sannleikur. Postulinn sýnir oss
hér til beggja hliða. Annarsvegar bendir hann oss á heiminn og þann mismun og
margbreytni, sem þar er hvarvetna, en hinsvegar bendir hann oss á himininn, og
þá einingu og samhljóðun, sem þar á heima. . .
. . . En hann vill að allir verði eitt, ein hjörð og einn hirðir. Varðveitum því
einingu andans. Einn er Drottinn, ein trú, ein skírn, einn Guð og faðir allra, sem
er yfir, með og í öllu
Amen. (Hér er aðeins birt lítið brot úr ræðunni).
Auk sálmanna í sálmabókinni frá 1886 komu út eftir hann sálmar í sálma-
bókarviðbæti frá 1933 og einnig í 150 sálma sálmabók. Nefnd presta hafði
1 Sjá bls. 57. Kbl. III, 1893, 12 tbl. bls. 182. Grein Brynjólfs heitir: Að predika blaðalaust.
78