Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2000, Blaðsíða 40
Rósa B. Blöndals
Þessi sálmur er afar sérstæður í röðum sálma, er fjalla um dauðann og ann-
að líf.
Sálmurinn: Þú Guð, sem stýrir stjarnaher, er sérlega einkennandi, fyrir
byggingu síra Valdimars á sálmum.
Ég minnist fjögurra ára stúlku sem heitir Erna Dís og er sonardótturdótt-
ir mín. Hún sagði: „Það er svo gott að læra þennan sálm. Sjáðu, Stýr mínu
hjarta, Stýr minni tungu, Stýr minni hönd, Stýr mínum fæti, Stýr mínum hag,
Stýr mínu fari. Sjáðu sko, hjarta, tungu, hönd, fæti, hag, fari.“ Þegar hún benti
mér á þetta, var hún búin að læra sálminn. Barnið gerði sér alveg grein fyrir
byggingu sálmsins, hvað mér þótti mjög sérstakt. Sálmurinn er átta erindi.
Ekkert skáld í sálmabókinni byggir svo sterkt fyrir skipan versanna, eins
og síra Valdimar. Fjögra til fimm ára börn hafa mest gaman af að lesa það
sama aftur og aftur, eða hlusta á sömu söguna endurtekna. Það er einmitt end-
urtekningin, sem er nauðsynleg til þess að læra. Börn þroska minnið vel við
að læra sálma.
Sálmurinn: Lát opnast augu mín; er annar sálmur er gefur góða hugmynd
um byggingarlist síra Valdimars á sálmum.
1. v. Lát opnast augu mín,
minn ástvin himnum á,
svo ástarundur þín
mér auðnist skýrt að sjá:
hið fríða foldarskraut,
hinn fagra stjarnaher
á loftsins ljómabraut
og Ijóssins dýrð hjá þér.
2. v. Lát opnast eyru mín,
minn ástarfaðir kær,
svo eilíf orðin þín
ég ávallt heyri skær:
Þíns lögmáls hvellan hljóm,
þín heilög boð, ei ströng,
þíns guðspjalls ástar-óm
og engla helgan söng.
Öll bygging þessa sálms, ber hin sterku einkenni skáldsins, að gera skip-
an versanna auðvelda. Sálmurinn er fimm vers.
38