Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2000, Blaðsíða 82
Rósa B. Blöndals
Síra Valdimar Briem hafði áður verið boðið sem heiðursgesti kirkjuþingsins
til Vesturheims á hátíðahöld er haldin voru í tilefni af tuttugu og fimm ára af-
mæli eða júbílhátíð kirkjufélagsins árið 1910. Urðu það mönnum þar vestra mik-
il vonbrigði er hann treysti sér ekki til að leggja í svo erfiða ferð.
Síra Valdimar skrifaði auk þess sem áður hefur verið getið víða í blöð og tíma-
rit. Greinar, ritgerðir og ýmsar tækifærisræður voru gefnar út eftir hann. Svo
nokkuð sé nefnt þá samdi hann fyrir Bókmenntafélagið Fréttir frá Islandi
1871-1878.
Arið 1887 þann 24. febrúar, fórst bátur frá Þorlákshöfn með sex mönn-
um. Þá var gefin út útfararminning eftir þá er fórust, alls 8 bls. með æviá-
gripi þeirra látnu og erfiljóðum eftir fjóra þeirra, er ort voru af síra Valdimar
Briem.
Leiðangurs-ljóð, minningarrit um hryggilegan mannskaða þann 7. apríl
1906. Þegar þrjú þilskip fórust sama daginn og með þeim 68 menn. Ljóðin
komu einnig út í N.kbl. þann 15. júní 1906.
I. Úti á djúpinu (Sbr. Lúk. 5, 4-5), alls 19 erindi. II. I storminum (Sbr.
Matth. 8, 23-27), alls 14 erindi. III. í leiðslu (Sbr. Mark. 6, 47-50), alls 14
erindi. IV. Á land (Sbr. Jóh. 21, 4. 7. 12.), alls 19 erindi. Sérprent úr ,JVýju
Kirkjublaði“.
Geta má þess að auk þeirra sálma er komu út í sálmabókinni frá 1886,
þar sem síra Valdimar á 102 sálma frumorta og 40 þýdda sálma og sálmabók-
ar með 150 sálmum er gefin var út árið 1912 þá komu út eftir síra Valdimar,
Biblíuljóð /., gefin út 1896, alls 120 ljóð á 414 bls. og þá, árið 1897, Biblíu-
Ijóð II., alls 89 ljóð á 448 bls., og árið 1898, Davíðssálmar, alls 150 ljóð á
218 bls. og einnig 1898, voru Barnasálmar gefnir út og endurútgefnir 1908,
50 sálmar á 50 bls. og það sama ár, árið 1908 var gefin út Jobsbók, 20 ljóð
á 115 bls. og tveimur árum fyrr eða 1906 Kristin barnafræði í Ijóðum, köll-
uð Ljóðakverið, 30 sálmar á 74 bls. Árið 1944 var gefin út Barnasálmabók,
þar voru yfir þrjátíu sálmar eftir síra Valdimar. Seinna voru gefnar út nokkr-
ar styttri útgáfur af barnasálmabókum, með mun færri sálmum eftir síra Valdi-
mar. Týndi sonurinn var gefinn út árið 1928. Þá hafa komið út eftir síra Valdi-
mar á annað hundrað sálma og skáldverka vestan hafs, er aldrei hafa komið
út hérlendis, aðallega í Sameiningunni, í Lögbergi og tímaritinu Aldamót, en
einnig Iítið eitt á öðrum vettvangi svo sem í Breiðabliki. Sunnan landamær-
anna í Bandaríkjunum, kom út fyrir aldamót ritið Kennarinn, útg. S. Th. West-
dal og ritstj. Björn B. Jónsson. Kennarinn kom út frá nóv. 1887 til okt. 1909
í Minnenot, Minn, U.S. Árið 1902 var útgáfa blaðsins flutt norður yfir landa-
mærin, til Winnipeg, Man., Kanada og var blaðið þá gefið út í minni útgáfu,
sem fylgirit með Sameiningunni, allt til októbermánaðar 1905. Á meðan rit-
80