Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2012, Blaðsíða 9
Formáli ritstjóra
Greinarnar í þessu hefti Ritraðarinnar eru að venju af ýmsum sviðum
guðfræðinnar. Það setur hins vegar mark sitt á ritið að þessu sinni að tveir
kennarar guðfræði- og trúarbragðafræðideildar létust á árinu og er þeirra
minnst hér í ritinu.
Þá fagnaði sr. Kristján Búason, dósent í nýjatestamentisfræðum, 80
ára afmæli sínu og eiga tvær greinanna í heftinu rætur sínar að rekja til
málþings sem haldið var til heiðurs Kristjáni í Neskirkju á afmælisdegi hans
27. október.
Birger Olsson, prófessor emerítus, flutti þar erindi sem hér birtist sem
grein: „The Reading of the NewTestament 1962-2012. Interpretation and
Faith“. Höfundurinn byrjar á því að rifja upp minningar frá námi sínu og
Kristjáns Búasonar í nýjatestamentisfræðum við Uppsala-háskóla á sjöunda
áratug síðustu aldar. Á göngu þeirra félaganna á þröngum götum kringum
Uppsala-dómkirkjuna að loknu semínari í nýjatestamentisfræðum á þeim
árum fannst þeim sem túlkunarferlið væri ekki sérlega flókið. Það snerist
aðeins um tvennt: textann og túlkun hans. Grein Olssons sýnir að ferlið
er nú nokkru flóknara en það. Ræðir hann ýmsar áherslur og aðferðir í
þróun nýjatestamentisfræðanna á umræddu tímabili, með sérstakri áherslu á
samband túlkunar og trúar enda var yfirskrift afmælisþingsins „Málþing um
kristna trú sem forsendu akademískrar ritskýringar Nýja testamentisins“.
Dr. Jón Ma. Ásgeirsson (1957-2012), prófessor í nýjatestamentisfræðum,
lést fyrir aldur fram 29. janúar 2012 eftir erfið veikindi. Hér eru birt minn-
ingarorð sr. Hreins Hákonarsonar, vinar hans, við útför Jóns. Þar segir sr.
Hreinn að Jón hafi viljað leggja sitt af mörkum til að guðfræðimenntun á
Islandi yrði eins og hún gerðist best í heiminum. Hann hafi iðulega varpað
fram óhefðbundnum og nýjum skoðunum í fræðunum og hrist rækilega
upp í nemendum sínum. Einn nemenda Jóns, Haraldur Hreinsson, tileinkar
og grein sína minningu Jóns og skrifar að auki ritdóm um rit hans og Þórðar
Inga Guðjónssonar, Frá Sýrlandi til Islands. Arfur Tómasar postula (2007).
Dr. Sigurður Orn Steingrímsson (1932-2012), prófessor emerítus, sem
var aðalþýðandi Gamla testamentisins í hinni nýju þýðingu Biblíunnar árið
2007, lést 26. ágúst sl. Jón Ásgeir Sigurvinsson minnist hans og skrifar m.a.:
„Það má segja að fræðastörf Sigurðar hafi að vissu leyti verið innblásin af
7