Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2012, Blaðsíða 47
hafa um aldir verið iðnir við að leggja hvort tveggja að jöfnu við andkrist
og illa herskara hans - Lúther var langt í frá sá fyrsti sem það gerði.36
Þá hafa jaðarsettir hópar allt frá montanistum annarrar aldar e.Kr. lesið
Opinberunarbókina inn í eigið samhengi alveg eins og fólk sem berst fyrir
jafnrétti37 og bættri félagslegri stöðu í dag.38
Sé yfirhöfuð unnt að benda á þau atriði sem halda uppi merkjum
Opinberunarbókarinnar sem klassísks rits,39 þá er þau að finna í baráttunni
milli góðs og ills, málaðri með æpandi litum opinberunarhefðarinnar. Það er
slagkraftur þessara átaka sem varir, og „hefur gildi sem getur ekki glatast og
er óháð öllum tímanlegum aðstæðum“.40 Sögulegar kringumstæður virðast
ekki skipta máli, hún talar inn í spennuþrungið andrúmsloft allra tíma þar
sem þörf er á því að draga skýrar línur á milli „okkar“ og „hinna“, þeirra
sem eru inni og þeirra sem eru úti, þeirra sem hafa á réttu að standa og
þeirra sem hafa rangt fyrir sér.
III. Átakalínur í Opinberunarbók Sigurbjörns
Eins og ritskýrendur umliðinna alda tekur Sigurbjörn sér stöðu öðrum
megin víglínunnar sem dregin er í Opinberunarbókinni og horfir í augu
andstæðinga sinna hinum megin við hana um leið og hann ritskýrir
textann. Tvenns konar átakalínur skulu hér nefndar sem fléttast þó saman
þegar betur er að gáð. Hinar fyrstu eru hinar raunverulegu átakalínur síðari
heimsstyrjaldarinnar sem gengu nærri öllu fólki sem komið var til vits og
ára, hvar sem það var statt í álfunni. Hinar síðari eru ekki jafn áþreifan-
legar og liggja á vettvangi guðfræði og kirkjupólitíkur. Fyrst skal þó vikið
að því hvernig Sigurbjörn fjallar um texta Opinberunarbókarinnar en
honum var mjög í mun að ekki færi á milli mála hvernig hann nálgaðist
viðfangsefnið, því á þeim vettvangi þurfti hann einnig að sporna gegn
öndverðum sjónarmiðum.
36 Kovacs og Rowland, Revelation, 19-20, 85 og 153-155.
37 Sjá skrif Schiissler Fiorenza, t.d. Book of Revelation sem áður hefur verið vitnað til eða Revelation:
Vision ofa Just World (Minneapolis: Fortress, 1991).
38 T.a.m. má finna ýmsar athyglisverðar vísanir til Opinberunarbókarinnar í sálmum blökkumanna
(e. spirituals). Sjá Kovacs og Rowland, Revelation, 121.
39 Stendahl heldur því raunar fram að það sé ekki hasgt, að hans mati eru viðtökur tiltekinna rita það
eina sem ákvarði „ldassík" þeirra, „The Bible as a Classic and the Bible as a Holy Scripture", 4.
40 Gadamer, Truth and Method, 288.
45