Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2012, Blaðsíða 71
Nútíminn er því fyrirbæri sem komið hefur til leiðar algerlega nýjum
aðstæðum í þeim samfélögum þar sem hugarfar hans hefur rutt sér til rúms
og valdið því að staða og hlutverk kennivalds hefur breyst í grundvallar-
atriðum. Skiptir þá litlu hvort um er að ræða kennivald sem byggist á verald-
legri þekkingu eða kennivald trúarbragða og trúarstofnana.
Markaðsvœðing þekkingar
Síðbúið dæmi um átök milli tvenns konar menningar, þess vegna „lítillar“
og „stórrar“, kemur fram í átökum um framtíðaráherslur í landbúnaði eins
og tvær skýrslur Alþjóðanefndar um framtíð matvæla og landbúnaðar sýna.
En þær voru nýlega gefnar út hér á landi í kverinu Ákall til mannkyns -
Sjálfbœrni, lýðheilsa, bœtt loftslag.20 Þar er hugmyndafræði grænu byltingar-
innar, módernismans í landbúnaði, gagnrýnd sem meinloka er gegnsýrð
sé af þröngsýni og einfeldningslegum sjónarmiðum í anda vélhyggju sem
grundvallist á úreltri og brotakenndri sýn á heiminn.21 Það sem barist er
fyrir í staðinn er landbúnaður sem byggir á líffræðilegum fjölbreytileika og
er rekinn í sátt við umhverfið út frá aðstæðum, þörfum og hagsmunum
íbúa á hverjum stað og hefur einkum að markmiði að brauðfæða íbúa
nærumhverfisins á grundvelli hefðbundinnar, sameiginlegrar þekkingar á
viðkomandi svæði. Líta má á þetta sjónarhorn sem síð- eða eftir-nútímaleg
(póst-módern) viðbrögð við grænu byltingunni sem var nútímaleg (módern)
í eðli sínu.
f síðari skýrslunni, sem hefur að geyma stefnuyfirlýsingu nefndarinnar
um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum og framtíð matvælaöryggis, er m.a.
gagnrýnd sú markaðsvæðing sem varð á landbúnaðarþekkingu í kjölfar
grænu byltingarinnar þegar hefðbundinni þekkingu var varpað fyrir róða
en nýjasta og vísindalegasta þekkingin hagnýtt til hins ýtrasta:
Á síðustu áratugum hefur landbúnaðarþekking, sem að mestu leyti taldist
til sameignar fram á áttunda áratug síðustu aldar, orðið fyrir gríðarlegum
formgerðarbreytingum. Fjárfesting og víðtæk stýring einkaaðila á landbúnaði
og fæðutengdum vísindum og tækni er orðin að ríkjandi skipan á sviði
rannsókna og þróunar. í henni felast nýjar birtingarmyndir eignarnáms-
ins á búskaparþekkingu sem eru miklu grófari en hið hefðbundna lífrán
nýlendustefnunnar. Hið iðnvædda einkaleyfakerfi nær til plantna, dýra og
20 Nefndin starfar undir forystu heimspekingsins og baráttukonunnar Vandana Shiva (f. 1952). Sjá
Vandana Shiva. Slóð, sjá heimildaskrá.
21 Ákall til mannkyns, 2011: 72, 101, 104.
69