Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2012, Blaðsíða 127
börn sífellt nýjan skilning á heiminum. Þau eru frá upphafi virk og skapandi
og leitast við, rétt eins og fullorðnir, að öðlast skilning á tilverunni og
umhverfinu, þar með talið hinum trúarlega veruleika.18
Rannsóknir og kenningar Piagets höfðu áhrif á trúaruppeldis- og kennslu-
fræði, einkum kenningar hans um formgerðir vitsmunalífsins, sbr. rannsóknir
og kenningar Ronalds Goldman.19 A síðasta fjórðungi aldarinnar breyttist
áherslan með þeim hætti að vaxandi gaumur var gefinn að rannsóknum á
inntaki trúarlegrar hugsunar barna í samanburði við fullorðna. Gunnar J.
Gunnarsson dósent gerir nokkra grein fyrir þessari þróun í doktorsritgerð
sinni.20 Trúkennslufræðingar hafa í barnaguðfræðinni séð nýja möguleika
til að sinna með verðugum hætti trúarbragðafræðslu í fjölmenningarsam-
félögum samtímans.21
Dr. Friedrich Schweitzer, sem er prófessor í kennimannlegri guðfræði
og trúaruppeldisfræði við Háskólann í Túbingen hefur verið leiðandi í
umræðunni um barnaguðfræði og trúaruppeldis- og kennslufræði í
Þýskalandi. Hann segir:
Trúarbragðafræðsla á ekki að stjórnast af uppeldisfræðilegum, pólitískum
eða kirkjulegum hagsmunum. Henni á að sinna vegna barnsins. Trúarlegt
uppeldi er ekki réttur kirkjunnar, ekki heldur réttur ríkisins eða foreldranna.
Það er réttur barnsins, bæði frá mannlegu og lögfræðilegu sjónarhorni.22
Schweitzer hefur lagt áherslu á að börn glíma við „stóru spurningarnar“
um líf og dauða, tilgang lífsins o.s.frv. og spurningar þeirra, sem í eðli sínu
eru trúarlegar, krefjast trúarlegra svara. I þessari glímu á ekki að láta börnin
afskiptalaus og þess vegna hafa þau rétt til trúar (þ. Religion). Það eru þessi
viðhorf til barna og sambands barna og trúarbragða sem hafa verið mótandi
18 Petritsch, Thomas. 2007. Entstehung und Grundlagen der Kindertheologie. http://
dokumente-online.com/was-ist-kindertheologie-seminararbeit.html. Sótt 31. des. 2012.
19 Goldman, Ronald. 1964. Religious Thinkingfrom Childhood to Adolescence. London. Routledge
and Kegan Paul.
20 Gunnar J. Gunnarsson. 2008. „/ Don't Believe the Meaning of Life is All That profound. “
Stockholm. Department of Education in Humanities and Social Sciences, Stockholm University.
21 Iversen, Gertrud Yde. 2007. „Det myndige barn som teolog, bibellæser og fortolker"„Hej, far,
ta’ og helbred manden“ Born som bibelfortolkere, ritstj. Gertrud Yde Iversen. 2007. Kbh. Aros
underviser.
22 Schweitzer, Friedrich. 2005. Das Recht des Kindes aufReligion. Ermutigungen fúr
Eltern und Erzieher. Gútersloh. Gútersloher Verlagshaus. Hér er vitnað í danska þýðingu, Barnets
ret til religion. Aros Forlag. Kbh. 2006, bls. 95-97; 141-149.
125