Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Page 89
Á l e i ð i s a ð U r ð a r s e l i
TMM 2017 · 4 89
IV
Skáldverkið um „sjálfstætt fólk“ er ekki nema að hluta til mótað af einni
stjórnmálakenningu. En samt er það svo að Halldór sér innri stéttarand-
stæður meðal bænda á Íslandi sem samfélagslega og efnahagslega grunn-
mótsetningu í skilningi marxistískrar greiningar. Á þeim tíma og lengi síðan
áleit hann þessa greiningu skilyrði fyrir því að hann hafi getað samið þetta
ritverk. Stjórnmálaleg greining hefur sínar takmarkanir, en virðist geta haft
örvandi áhrif á höfund við tilteknar sögulegar og samfélagslegar aðstæður.
Halldór hefur sagt frá því að hann hafi lengi gengið með hugmyndir og
kveikjur að slíku skáldverki. Og þetta er staðfest með handritum frá hendi
hans. Margt hefur verið nefnt um hugsanlegar fyrirmyndir. Í útvarpsviðtali
1964 nefnir hann Svínanessel í Múlasveit við Breiðafjörð, en þar hafði hann
dvalist nokkra daga 1921: „þarna er kveikjan að Sjálfstæðu fólki“ (Finnbogi
1998, 2017). Í viðtali við Matthías Johannesen bendir Halldór á Sel sem
„frumfyrirmynd“ en um leið segir hann það eintóman „hugarburð“ að þar
sé staðurinn eða að þar sé fyrirmynd að Bjarti (Matthías 1972:55). Halldór
ber alveg á móti því að Bjartur taki svipmót af Kristjáni Sigfússyni í Svína-
nesseli. Hann talar um „ágiskanir manna um Bjart … það er á misskilningi
byggt“ (Finnbogi s.st.). Nákunnug kona hefur borið um Kristján að hann
væri „ekki vitund líkur Bjarti“, heldur hæglyndur, þægilegur og hógvær
maður (Finnbogi s.st.; sjá: Kjartan 2016). Og enda þótt kveikja að verkinu
hafi borist skáldinu í Svínanesseli forðum benda staðháttalýsingar í Sjálf-
stæðu fólki til heiðanna norðaustan lands. Og þetta staðfestir skáldið löngu
síðar (H 1965:55).
Í eftirmála við 2. útgáfu verksins 1952 segist Halldór hafa lært í heimsókn
í Ráðstjórnarríkjunum að aðalatriði sé „hin einfalda skiftíng bænda eftir
stétt“ (H 1952: 471). Skilningur um stéttarandstæður innbyrðis meðal bænda
og búaliðs eru hér grundvöllur fyrir höfundinn. Og hann segir: „… þessi
skiftíng … lauk í raun og veru upp fyrir mér öllu vandamálinu og gerði mig
hæfan að færast það í fáng í fullri birtu á þjóðfélagslegum grundvelli“, hvorki
meira né minna (H s.st.).
Og í þessu ljósi gerir Halldór sér ljóst að hér er „smábóndinn sígild,
alþjóðleg manngerð“ (H 1952:472). Um þetta nefnir hann sem dæmi banda-
rískan ferðamann sem kom á heimili skáldsins löngu síðar til að þakka fyrir
verkið. Halldór gerði síðar nánari grein fyrir þessari heimsókn. Samanburður
þeirrar greinargerðar við Sjálfstætt fólk sýnir hvílík heljarstökk skáldið hefur
síðar tekið í skoðunum um samfélagsmál (H 1965). En Halldór aðhylltist
ekki efnishyggju marxismans eða söguskoðun hans („Dialektik“: fram-
vinda sem mótsetningar knýja áfram; sbr. kenningar þýska heimspekingsins
G.W.F.Hegel) (Sjá t.d.: Matthías 1972:40). Eins og hann sagði sjálfur hneigðist
hann að róttækri samhyggju og jafnaðarstefnu, sósíalisma, við kynni sín af