Blik - 01.06.1976, Blaðsíða 47
AUSTFIRÐINGUR
Þrír piparsveinar
Sveitarbæirnir stóðu í röð fram
meS klettóttri sjávarströndinni. Þó
var æðispölur á milli þeirra. Sími
var þar á hverjum bæ.
Bræðurnir Hávarður og Karl
bjuggu í sambýli á einni jörðinni.
Þeir voru lítið upp á kvenhöndina,
en höfðu kvensaman hálfvita á fram-
færi sínu fyrir hreppinn.
Hávarður bróðir hafði frétt sím-
leiðis, að bóksali væri á ferð um
sveitina og gengi 'bæ frá bæ með
bókatöskuna sína. Hávarður leit þög-
ull í vesturátt og var á verði. Bóksal-
mn var væntanlegur á hverri stundu.
Og svo sást hann á næsta leiti vestan
við túnið.
„Hvað er nú til ráða til þess að
snúa peyja af sér?“ spurði Hávarð-
ur Karl bróður sinn. „Láttu mig um
það,“ sagði Karl.
Stúlka hafði slegizt í för með bók-
salanum. - Drepið var á dyr. -
„Farðu til dyra,“ skipaði Karl
hálfvitanum kvensama. - Þegar hálf-
vitinn sá stúlkuna standa þarna við
hlið bóksalans, strunsaði hann til
hennar og bjó sig til að strjúka
henni um lífið. Bóksalinn klappaði á
öxl bans og óskaði eftir ráðandi heil-
vita til viðtals. „Gef mér tuttugu og
fimm aura ,greyið,“ sagði hálfvitinn.
Þegar Karl bóndi varð þess á-
skynja, hvað gagntók allan hug hálf-
vitans, gekk hann til dyra.
Bóksalinn heilsaði blítt og kurteis-
lega og bar upp erindið. Hávarður
bróðir hans stóð að baki Karli, sem
hafði svör á reiðum höndum: „Hvern
andsk...... hefur það heimili við
bækur að gera, þar sem allir eru
ólæsir?“ — Bóksalinn varð hvumsa.
Honum hnykkti við. - Hann kvaddi
kurteislega, og svo stúlkan, sem hafði
varizt hálfvitanum af harðfylgi.
Svo héldu þau til næsta bæjar.
Ljúfur og látlaus kom húsbóndinn
þar til dyra og bauð bóksalanum inn
ásamt fylginautnum. Og nú kom til
Teiz og Siggu um verzlunina. Bók-
salinn lagði hinar skrautbundnu
bækur á stofuborðið, lofaði þær í
hástert og höfundana. - „Hversu
margar bækur keyptu þeir hérna á
næsta bæ fyrir innan?“ spurði bóndi.
„Minnstu ekki á það,“ sagði bóksa’-
inn,“ þar reyndist hver hálfvitinn
öðrum verri og einn þeirra þoldi
naumast við fyrir kvensemi.“
„Já, liálfvitar, já, ekki minna en
það,“ sagði bóndi og varð dálítið
kindarlegur á svipinn. „Það er nú
svo, það er nú svo. Bændurnir á Hól-
um eru bræður mínir og ég kýs þá að
vera í hálfvitahópnum þhirra og
kaupa engar bækur af þér heldur.“
BLIK
45