Blik - 01.06.1976, Síða 179
Vestmannaeyingar og Rauði Kross íslands
og Hjálparstofnun kirkjunnar
Tilgangur minn með útgáfu Bliks
hefur ávallt verið sá öðrum þræði, að
halda til haga köflum úr sögu Vest-
tnannaeyinga og Vestmannaeyja.
I fyrra birtist í Bliki skýrsla um
starfsemi Vestmannaeyjabæjar í
Hafnarbúðum eftir bæjarlögfræðing-
mn Georg Tryggvason. Að þessu
sinni birtir Blik skýrslu formanns
Rauða Kross íslands, Björns Tryggva-
sonar bankastjóra, um þá hina miklu
hjálp og aðstoð, sem sú hjálparstofn-
un hefur veitt Vestmannaeyjabyggð
og Vestmannaeyingum, til þess að
endurreisa byggð í Eyjunum og veita
aðstoð húsnæðislausum Eyjabúum
eftir flóttann, þegar eldgosið hófst.
Þá eru hér einnig birtar tölur, sem
greina frá hjálp Hjálparstofnunar
hinnar íslenzku þjóðkirkju til sömu
aðila. Sú hjálp hafði samtals numið
um kr. 25 milljónum við árslok 1974.
M- a. greiddi Hjálparstofnun kirkj-
unnar kr. 12,5 milljónir til bygging-
ar barnaheimilisins (leikskólans)
Kirkjugerði.
Enn eru skýrslur í fórum Bliks um
þetta risavaxna hjálparstarf þessara
stofnana, og skulum við vona, að
Þliki endist aldur til þess að birta
þær síðar.
Vissulega ber okkur Eyjabúum að
þakka af alúð alla veitta hjálp á und-
anförnum árum, þakka einstaklingum
og stofnunum, sem lagt hafa hér hönd
á plóginn og veitt okkur ómetanlega
hjálp til þess að lifa áfram mann-
sæmandi lífi þrátt fyrir öll ósköpin,
sem yfir hafa dunið. Og það er mín
sannfæring, að við megum þá heldur
ekki gleyma að þakka ríkisvaldinu
hjálp þess og alla aðstoð. Eg tek þetta
sérstaklega fram af gildum ástæðum.
Öll þessi mikilvæga hjálp hinna
mörgu einstaklinga og stofnana hefur
valdið miklu. Hinn markverði árang-
ur fer ekki framhjá neinum. Endur-
nýjun og uppbygging atvinnulífs og
menningarlífs í ríkum mæli á sér stað
í bænum okkar.
Hér birtum við myndir af bygg-
ingum, sem keyptar hafa verið eða
reistar til hjálpar og uppbyggingar,
og svo reikninga, sem veita okkur
fræðslu um það, hvaðan féð til fram-
kvæmdanna er runnið og hvernig því
hefur verið varið.
Reikningsyfirlitið og greinargerð-
ina hefur Rauði Kross Islands afhent
Bliki til birtingar samkvæmt einlægri
ósk minni, Þ. Þ. V.
blik 12
177