Blik - 01.06.1976, Blaðsíða 121
breyting á högum þessa vel gefna og
otula verzlunarstjóra. Afengisnautn-
in varð honum og fjölskyldu hans að
falli.
Hinn 21. nóv. 1862 gekk S. Gísli
G. J. Bjarnasen verzlunarstjóri að
eiga eina af heimasætunum í Eystra-
Stakkagerði. Hún hét Dorthea Mar-
ia og var dóttir hjónanna frú Ásdis-
nr Jónsdóttur Núpshjáleigu í Beru-
firði og Anders skipstjóra Asmund-
sen, sem var Norðmaður. Frú Dor-
thea Maria var fædd 3. júní 1839 að
Eornhól í Eyjum, en foreldrar henn-
ar bjuggu þar þá nýflutt í kauptún-
ið austan frá Djúpavogi. Síðan
bjuggu þau í Eystra-Stakkagerði til
ársins 1851, en það ár fórst Anders
Asmundsen á skútu sinni með allri
áhöfn.
S. Gísli G. J. Bjarnasen, verzlunar-
stjóri, var talinn hæfileikamaður,
hæglátur daglega og hugljúfi hvers
rnanns. Þar gætti ekki hins kunna
hroka margra „factoranna“ gagnvart
snauðum almúganum í byggðarlag-
inu. Almenningur harmaði þau örlög
hans að verða áfengisnautninni að
hráð og tortíma þannig gæfu og
gengi sjálfra sín og fjölskyldu sinn-
ar. Hann var sviptur verzlunarstjóra-
stöðunni árið 1881.
Þá höfðu hjónin eignazt fimm
hörn. Auk þess höfðu þau tekið í
fóstur og alið upp son C. L. Möllers
og konu hans, frú Ingibjörgu Möller,
þegar C. L. Möller féll frá árið 1862
eða sama árið og þau giftu sig, Gísli
og María. Þannig vildi verzlunar-
stjórinn launa þeim góðu hjónum
það, sem þau höfðu fyrir hann gert
og verið honum, eftir að hann missti
föður sinn árið 1845, þá níu ára
Eftir stöðumissinn fluttu hjónin úr
Danska-Garði og settust að með
barnahópinn sinn í kofaræksni, sem
stóð skammt vestur af Ottahúsi (áð-
ur Beykishúsi (Sig. Breiðfjörð) og
síðast Jómsborg. Þarna var löngu
síðar mótað torg og kallað Heima-
torg. Það var svæðið sunnan og suð-
vestan við Nýju rafstöðina í Eyj-
um, sem fór undir hraun í marzmán-
uði 1973. Kofaræksni þetta hét Pét-
ursborg og var læknissetur Vest-
mannaeyja um miðja 19. öldina. Hús
þetta fauk í austan stórviðri árið
1896.
Eftir skamma dvöl í Pétursborg
fluttu hjónin að Vilborgarstöðum og
settust að á einni Vilborgarstaðajörð-
inni og fengu einhver afnot hennar.
En landbúnaður var heimilisföðurn-
um ekki tamur, svo að þau sáu sitt
óvænna um að framfleyta sér og sín-
um þarna á Vilhorgarstöðum.
Vorið 1883 tóku þessi hjón sig
upp með barnahópinn sinn og fluttu
til Kaupmannahafnar. Eftir það
dvöldust þau í Danmörku til dauða-
dags, og börn þeirra ílentust þar eða
annars staðar erlendis.
Börn þeirra voru þessi:
Maria D. A. Bjarnasen.
Jóhann C. A. Bjarnasen, 10 ára.
Rósa J. P. Bjarnasen, 8 ára.
Jóhanna C. A. Bjarnasen, 6 ára.
Niels Ch. B. Bjarnasen, 4 ára (f.
23. febr. 1879).
Pétur Anders Bjarnasen.
blik
119