Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1966, Page 103
— 101
1966
Akranes. Fara nú eingöngu fram á heilsuverndarstöðinni. Þó fer end-
urbólusetning barna gegn bólusótt fram í barnaskólanum.
Búðardals. Þrátt fyrir hvatningar varð lítil þátttaka í framhaldi
ónæmisaðgerða gegn mænusótt. Til að fá almenna þátttöku þyrfti senni-
lega almenna fræðslu.
Blönduós. Með líku sniði og árið áður. Eru að jafnaði framkvæmdar
einu sinni í viku og þá á sérstökum tíma. Um leið fer fram skoðun van-
færra. Hugsa foreldrar yfirleitt mjög samvizkusamlega um að láta
bólusetja börn sín.
ólafsfj. Gefinn kostur á ónæmisaðgerðum vikulega. Þó hef ég kúa-
bólusetningu mánaðarlega.
Akureyrar. Að heita má öll börn koma til ónæmisaðgerða vegna
mænusóttar, barnaveiki, kikhósta og stífkrampa, en fullorðnir mæta
illa til að halda við ónæmi gegn lömunarveiki.
Breiðumýrar. Ég hef áður nefnt það í ársskýrslu, að til þess að
ónæmisaðgerðir komist nokkurn veginn reglulega á í dreifbýli, þarf
mikinn áróður og aðhald af hálfu héraðslæknis. Nú eru þær ekki í því
horfi hér, sem æskilegast væri. Þó hef ég á árinu haft ónæmisaðgerðir
fyrir aðalstarf í 25 daga.
Kópaskers. Nokkuð góð regla er á trívax- og pólíó-bólusetningum.
Kúabólusetning í ólestri.
Raufarhafnar. Góð regla er á trívax- og pólíó-bólusetningu, en kúa-
bólusetning hefur verið í mesta ólestri. Reynt var að ná til flestra
ófermdra.
Þórshafnar. Öllum var gefinn kostur á ónæmisaðgerðum, sem þess
óskuðu, og tel ég, að allir hafi fullan skilning á nauðsyn þeirra.
Vopnafj. Fólk er yfirleitt pössunarsamt með að láta bólusetja börn
sín á réttum tíma.
Norður-Egilsstaóa. Bólusetti fyrir áramót allt það gamalt fólk í
héraðinu, sem ekki hafði fengið mislinga.
Hafnarfj. Öll börn undir 6 ára aldri í héraðinu fá hinar venjulegu
bólusetningar á Heilsuverndarstöðinni á Sólvangi.
VI. Barnsfarir og meðferð ungbama.
Töflur XII—XIV.
A. Barnsfarir.
Á árinu fæddust samkvæmt tölum Hagstofunnar 4692 lifandi og 57
andvana börn.
Skýrslur Ijósmæðra geta fæðinga 4615 barna og 73 fósturláta (utan
Reykjavíkur).