Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1966, Page 106
1966
— 104 —
Rvík. 1 Slysavarðstofu Reykjavíkur komu á árinu til fyrstu aðgerð-
ar 18015 sjúklingar, 11869 karlar og 6146 konur. Manndráp voru tvö.
Sjálfsmorð voru 16. Banaslys í Reykjavík urðu 25.
Álafoss. Meiriháttar slys fara öll á Slysavarðstofu Reykjavíkur og
fá meðferð þar.
Stykkishólms. Tvö dauðaslys á árinu. Tvö alvarleg slys af dráttar-
vélum.
Flateyrar. Banaslys sl. sumar, er bíll frá Akureyri ók út af veginum
skammt frá Flateyri.
Akureyrar. Gerð er grein fyrir eðli og tildrögum 90 slysa.
Breiðumýrar. Eitt dauðaslys, er 4 ára stúlka drukknaði í tjörn við
Laugaskóla.
Húsavíkur. Mér er kunnugt um eitt meiriháttar slys í héraðinu á
árinu. Tæplega hálffimmtugur karlmaður ók fram af sjávarhömrum
við Eyvík á Tjörnesi. Maðurinn lézt á leið í sjúkrahús.
Eskifj. Óvenjumikið var um slys á árinu. Stafaði það af miklu at-
vinnulífi. Sérstaklega var mikið um alls konar slys haustmánuðina,
eftir að síldarsöltun byrjaði af fullum krafti. Mest bar þá á handar-
meiðslum, eins og alltaf vill verða, þegar hnífar eru á lofti.
BúSa. Banaslys varð í júlímánuði.
Hafnarfj. Slys hafa orðið allmörg, en flest minniháttar, aðallega
beinbrot.
B. Slysavarnir.
í7r árbók Slysavamafélags íslands:
Á árinu voru 292 skip aðstoðuð eða bjargað. Sjóslys og drukknanir
voru 88, banaslys í umferð 27 og banaslys af ýmsum orsökum 22. Úr
lífsháska af ýmsum ástæðum var bjargað 149 manns. Tekjur félags-
ins námu kr. 6075465,67, þar af tillag ríkissjóðs kr. 550 þús. og Reykja-
víkurborgar kr. 150 þús.
Hafnarfj. Slysavarnarfélögin halda uppi fjársöfnun á hverju ári til
styrktar slysavörnum í héraðinu.
C. Mannskaðarannsóknir og önnur réttarlæknisstörf.
Engin skýrsla barst frá Rannsóknarstofu Háskólans fyrir þetta ár.
Rvík. Gerðar voru 79 réttarkrufningar á árinu. Leitað var álits míns
í 5 barnsfaðernismálum.
Keflavíkur. Allar réttarkrufningar fóru fram á Rannsóknarstofu
Háskólans við Barónsstíg.