Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1966, Page 118
1966
— 116 —
BlóSflokkanir og aörar rannsóknir gerðar fyrir
mæöravernd Hafnarfjaröar:
ABO D CDE/ce Rh-screen- Rh-titr. Rannsóknir
test alls
28 27 - 9 - 64
Rh-screen-test gerð fyrir mæðravernd Hafnarfjarðar á árinu —
9 negativ.
Ýmsar flokkanir og aðrar rannsóknir:
ABO D CDE/ce Coombs- próf Screen- test Rh-titr. Krosspr. Alls
53 43 10 3 6 - 115
ATH.: Coombspróf — 3 negativ
Screen-test — 6 negativ
D. Tilraunastöð Háskólans í meinafræði, Keldum.
Úr ársskýrslu tilraunastöðvarinnar:
Miltisbruni.
Eins og getið er um í síðustu ársskýrslu, kom upp miltisbruni að
Þórustöðum í ölvesi, og fórust úr sjúkdóminum 6 nautgripir. Var þá
horfið að því ráði að bólusetja gripina. Síðan hefur sjúkdóms þessa
ekki orðið vart á bænum. Grunur lék á, að nokkur svín hefðu veikzt af
miltisbruna á þessum bæ, en ekki var hægt að staðfesta þann grun við
sýkla- og smásjárrannsókn.
Toxoplasmosis.
Eins og greint var frá í síðustu ársskýrslu, prófaði dr. Siim við
Serumstofnunina í Kaupmannahöfn ca. 140 sýni úr fólki, sem héðan
voru send. Sum þeirra reyndust jákvæð, að því er varðar toxoplasma-
mótefni. Þegar dr. Siim heimsótti tilraunastöðina á liðnu sumri, tal-
aðist svo til, að hann prófaði dálítið af sauðablóðum á sama hátt.
Þegar er lokið við að prófa nokkuð af blóðsýnum, og verður því haldið
áfram 1967 að öllu forfallalausu.
Krabbameinsrannsóknir.
Þorsteinn Þorsteinsson hefur unnið hér við stofnunina nú eins og
undanfarin ár á vegum Krabbameinsfélags Islands. Rannsóknum á
efnum, sem geta valdið krabbameini, var haldið áfram. Polycyklisk
kolvatnsefni voru ákvörðuð í svartfuglum matreiddum á skagfirzka