Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1966, Side 120
1966
— 118 —
sendu til veirurannsókna 315 sýni frá 180 sjúklingum, og var það mun
minna en sent var 1965.
Landsspítalinn, D III sendi 40 sýni frá 26 sjúkl.
— D IV — 1 — — 1 —
— D VII — 141 — — 69 —
Borgarspítalinn, Reykjavík — 9 — — 6 —
Landakotsspítalinn, Reykjavík — 17 — — 11 —
Sjúkrahús og læknar, Akureyri — 14 — — 11 —
Héraðslæknirinn, Hvammstanga — 63 — — 41 —
— Blönduósi — 15 — — 5 —
— Húsavík — 5 — — 3 —
— Sauðárkróki — 6 — — 2 —
— Vestmannaeyjum ... — 1 — — 1 —
Borgarlæknir, Reykjavík — 4 — — 4 —
1 ársbyrjun gekk enteroveirufaraldur í Hvammstangahéraði, þar sem
mikið bar á einkennum frá öndunarfærum.
1 apríl voru greindar inflúenzuveirur af A stofni frá sjúklingum,
sem veiktust í smærri faröldrum af inflúenzu á Akureyri, Blönduósi,
Sauðárkróki og Reykjavík. Hjá allmörgum sjúklingum á batavegi var
sýnt fram á hækkandi mótefni gegn stofni A. Engar mænusóttarveirur
ræktuðust á árinu, og mjög lítið barst af sýnum til rannsóknar haust-
mánuðina.
Mislingar.
Gerður upp árangur af bólusetningartilraunum með veikluðu misl-
ingabóluefni (Swartz strain), Lirugen, í nágrenni við Egilsstaði,
S-Múl. Grein um þetta efni er í prentun í Bulletin of W. H. 0. Sömu-
leiðis er þar í prentun grein um athuganir á mislingamótefnum í fólki,
sem var bólusett 1962. Mótefni þessa fólks voru athuguð þremur árum
eftir bólusetninguna. Höfundar: Margrét Guðnadóttir, Kristín Jóns-
dóttir og F. L. Black. Safnað var skýrslum um reaktion og árangur af
mislingabólusetningu á Norður- og Norðausturlandi 1966. (Bóluefninu
var dreift frá Keldum að beiðni landlæknis). Bólusettir um 3000 manns
víðs vegar á landinu.