Hugur - 01.01.2018, Page 54

Hugur - 01.01.2018, Page 54
54 Svavar Hrafn Svavarsson þessi órói og þær rannsóknir sem fylgdu hafi verið til marks um óvenjulega skerpu og forvitni (PH 1.12). En þrátt fyrir skerpuna reyndist þessum rannsakendum ofviða að komast að niðurstöðu sem ekki mátti svara með jafnsannfærandi niður- stöðu; alltaf enduðu þeir í fyrrgreindu jafnvægi (sem verður betur skýrt að neðan). Þó mætti kannski segja að þeir hefðu einmitt verið sérlega flinkir að skapa þetta jafnvægi vegna skerpunnar. Hvað um það. Þeir kynntu til sögunnar tiltekna hætti, dómsfrestunarhætti, sem alltaf mátti bregða á deilur og ágreining. Frægastir eru hættir Ænesidemosar og huldumannsins Agrippu.9 Alltént voru þeir knúnir til að halda öllum skoðunum í skefjum, þ.e. þeir gátu ekki fallist á nokkra stað- hæfingu (sem byggði á einhverri greinargerð) um raunveruleikann sjálfan, enda fundu þeir alltaf andstæða staðhæfingu (sem byggði á einhverri annarri greinar- gerð) sem var jafnvæg hinni. Þeir frestuðu sem sagt dómi. Nú mætti halda að þeim hefði mistekist og þeir væru jafn órólegir sem fyrr, ef ekki enn órólegri. En reynsla þeirra varð allt önnur. Sextos segir að „þegar þeir frestuðu dómi, fylgdi hugró í málum sem varða skoðanir af tilviljun“ (PH 1.26). Lesandinn furðar sig líklega á síðustu tveimur orðunum í þessari tilvitnun. Við víkjum að þeim síðar. Þegar pyrrhonistinn hefur reynt það sem gerist við dómsfrestun, þá, segir Sextos, segja þeir markmið sitt vera þessa hugró í málum sem varða skoðanir og „mátulegar kenndir (gr. metriopaþeia) í málum sem við neyðumst til að þola“ (PH 1.25). Þess vegna leita þeir dómsfrestunar í öllum málum. Næðu þeir henni ekki, færu þeir væntanlega á mis við hugróna. En eftir stendur að þeir verða að rann- saka málin, kanna rök með og á móti, af heilindum, því öllu skiptir að þeir neyðist til að fresta dómi, hvað svo sem þeir vilja gera. Dómsfrestunin verður ávallt að vera raunveruleg, en ekki leikin eða svikin, því leikin dómsfrestun gefur til kynna að ekki búi að baki raunverulegt jafnvægi sannfæringar með og á móti. Það græfi undan hugrónni. Nú má spyrja: Í hvaða skilningi rannsaka þeir þá eða kanna? Tilgangur rannsóknanna er hugró. Sem efahyggjumenn rannsaka þeir ekki með því yfirlýsta markmiði að komast að sannleika einhverrar greinargerðar, enda gef- ur Sextos það ekki í skyn. Hann gefur frekar í skyn að þeir vilji fyrir alla muni forðast mistök; slík aðferð beinist einnig að sannleikanum.10 Hvað um það: Í ljósi þessa mætti ætla að þeir væru ekki raunverulegir heimspekingar, kannski fremur andheimspekingar. En á móti kemur að þeir verða að rannsaka af heilindum, hvort heldur viðfangsefnið sé stóísk kenning um dyggð eða epíkúrísk kenning um ánægju, eða þá mótrök gegn hvoru tveggja, en jafnframt vonast eftir því að hvað vegi annað upp svo jafnvægi skapist. Kannski eru þeir hlutdrægir frá upphafi, fullvissir um að jafnvægi fylgi. Og vafalaust hafa þeir vanist þeirri niðurstöðu. Við ætt um samt að virða þær skorður sem þeir setja rannsóknum sínum, því jafnvel á sama tíma og þeir vonast eftir hugrónni, þá rætist ekki úr henni nema þeir kanni sérhverja greinargerð fyrir veruleikanum, með og móti alls kyns sýnd um, af jafnmiklu hlutleysi og heilindum og getur getið af sér dómsfrestun. Jafn framt 9 Ænesidemos var uppi á fyrri hluta 1. aldar f.Kr. Hann sagði sig úr Akademíunni, skóla Platons, sem hafði verið efahyggjuskóli um a.m.k. tveggja alda skeið og kenndi sig fyrstur við Pyrrhon. 10 Um greinarmun þess að samþykkja (sannfærandi) skoðun og hafna skoðunum (jafnvel sann- færandi) til að forðast mistök, má lesa í frægum greinum eftir þá nafnana William K. Clifford („Rétturinn til sannfæringar“) og William James („Trúarvilji“); sjá Róbert H. Haraldsson 1993. Hugur 2018meðoverride.indd 54 24-Jul-18 12:21:23
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.