Hugur - 01.01.2018, Page 73

Hugur - 01.01.2018, Page 73
 Hin póetíska rökræðusiðfræði 73 gjörðarmótsögn við yrðinguna, það að segja þetta sýnir að yrðingin er ekki sönn, orð og æði stangast á. Hvað um þá sem einfaldlega hafna boðorðunum án raka? Apel segir að vilji þeir ekki rökræða, þá geti þeir alls ekki spurt spurningarinnar um hvort hægt er að ígrunda siðferðileg boðorð með skynsamlegum hætti. Sjálf spurningin hefur rökfærslu að forsendu, menn verða t.d. að geta rökstutt að vit sé í spurningunni. Að mati Apels sýnir þetta að sjálfdæmishyggja Ayers og félaga sé sjálfsskæð. Athugið að greining Apels er í formi ímyndaðrar rökræðu við þann sem er á öndverðum meiði við rökræðusiðfræðinga. Hvað eftir annað reynir Apel að sýna fram á að skoðun andstæðingsins í rökræðu leiði hann í gjörðarmótsagnir. Þannig er hugsun Apels díalógísk í eðli sínu. Apel heldur því fram að réttmæt siðaboð leiði hvorki röklega af staðreyndum né öðrum boðorðum heldur megi uppgötva þau með forskilvitlegri greiningu á boðskiptaferlinu. Slík greining felst m.a. í því að athuga hvort það að fylgja til- teknu siðaboði leiði til gjörðarmótsagna. Leiði það til gjörðarmótsagna að fylgja siðaboðinu, geti það ekki talist réttmætt. Að öðru leyti ákvarðist réttmæti siða- boða í rökræðum manna.31 Siðferði manna sé í kjarna sínum boðskiptasiðferði, siðalögmálið sé ekki að finna í hjörtum vorum heldur á tungum okkar. Með því einu að stunda boðskipti væntum við og vísum til boðskiptasamfélags sem er í prinsippinu ótakmarkað og fullkomið.32 Minnumst þess að samkvæmt (eldri) kokkabókum Habermas er rökræðuþáttur byggður inn í boðskipti og rökræðuþátturinn vísar til frjálsrar og óþvingaðrar samræðu. Slík samræða er nokkurn veginn það sama og hið full- komna boðskiptasamfélag Apels. Munum líka að boðskipti eru málgjörðir eða fall af þeim. Réttmætiskröfur sem byggðar eru inn í málgjörðir hafa siðferðilegan þátt. Þessar kröfur eru rökstyðjanlegar og fallvaltar. Þær eru því skynsamlegar, í ljósi þess má ætla að siðferðið hafi a.m.k. einhvern skynsemisþátt. Innblásinn af Habermas beinir Apel sjónum sínum að málgjörðarspekinni og greiningu hennar milli staðhæfingar- og gjörðarhluta málgjörða. Í samræðu geta menn ekki látið sér nægja að setja fram raunhæfingar sem eru algerlega sneydd- ar siðþætti. Jafnvel raunhæfingar hafa gjörðarhluta. Hann tengir þær, alla vega óbeint, við boðskiptaathafnir sem hafa innbyggðar siðferðilegar kröfur á hendur öllum meðlimum boðskiptasamfélagsins. Það að setja fram raunhæfingu í fullri alvöru þýðir að maður hlýtur að vera tilbúinn til að verja sannleiksgildi hennar gegn hverjum sem er, hvenær sem er, í fortíð, nútíð og framtíð. Í fullkomnu boð- skiptasamfélagi ættu menn að geta ferðast í tíma til að verja raunhæfingar sínar í frjálsri og óþvingaðri rökræðu við hvaða viðmælanda sem vera skal. En þetta 31 Hann telur sig slá tvær flugur í einu höggi, annars vegar sýna fram á að það leiði til gjörðar- mótsagna að hafna rökræðusiðfræðinni sem kenningu um siðferði, hins vegar að það leiði til gjörðarmótsagna að fylgja ákveðnum siðaboðum. 32 T.d. Apel 1973c: 52–68. Þetta boðskiptasamfélag er nokkurn veginn það sama og kjörræðustaða Habermas. Gagnstætt Habermas dró Apel þessa kenningu aldrei til baka. Vel má vera að hug- myndin um kjörræðustöðu/boðskiptasamfélag sé nauðsynleg forsenda rökræðusiðfræði, þess vegna eyddi ég allnokkru rými í að gera grein fyrir kenningunni um kjörræðustöðu þótt Haber- mas hafi dregið hana til baka. Hugur 2018meðoverride.indd 73 24-Jul-18 12:21:24
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.