Hugur - 01.01.2018, Side 94

Hugur - 01.01.2018, Side 94
94 Jón Ásgeir Kalmansson Það er meðal annars hér sem við getum séð í hvaða skilningi bók Coetzees er ekki siðfræðirit í hefðbundinni merkingu þess orðs – þótt hún fjalli með mjög athyglisverðum hætti um heimspekilegar og siðfræðilegar spurningar og verð- skuldi því fyllilega að vera talin til slíkra rita. Þótt nútíma heimspekingar á borð við Mary Midgley, Tom Regan og Peter Singer hafni skynsemishyggju klassískra heimspekinga og færi rök fyrir beinum skyldum manna við dýr, þá er orðræða þeirra af sama meiði og fyrirrennara þeirra. Hún er rökræða um „hvers kyns sál- ir dýr hafa“ og svo framvegis. Þótt Costello segist munu „grípa til hennar um stund“,22 kannski vegna þess hve áhrifamikil hún er, þá vill hún samt „streitast á móti þar sem ég sé fyrir mér að með því skrefi gæfi ég eftir alla baráttuna“.23 Ástæða er til að staldra hér við um stund og spyrja hvers vegna Costello er svo í nöp, ekki aðeins við „dýrasiðfræði“ Aristótelesar og Descartes, heldur einnig þeirra Mary Midgley og Toms Regan, sem eru þrátt fyrir allt einhverjir einörð- ustu talsmenn dýraréttinda í heiminum nú á dögum? Hvers vegna er hætta á því að maður gefi eftir alla baráttuna fyrir hönd dýranna ef maður notar hina hefð- bundnu orðræðu heimspekinnar? Er sú aðferð heimspekinnar að spyrja um rök og ástæður, skilgreina hugtök, og draga ályktanir virkilega svona slæm? Og hvað er eftir ef við höfnum skynseminni annað en geðþótti og stjórnleysi? Til að svara þessum spurningum er nauðsynlegt að átta sig á því að þótt Costello gagnrýni harðlega skynsemina í mynd „heimspekilegrar orðræðu“ frá Aristótelesi til heimspekinga okkar daga, þá boðar hún ekki andskynsemi eða geðþótta sem andsvar. Ein aukapersóna sögunnar, Elaine Marx, bendir Costello á að gagnrýni hennar á heimspekilega orðræðu um dýr feli í raun í sér trú á skynsemina: „Samt sem áður segir einmitt sú staðreynd að þú getur fært rök gegn þessu, opinberað hvað er rangt við þetta, að þú setur ákveðið traust á mátt skynseminnar, sannrar skynsemi sem andstæðu falskrar skynsemi.“24 Costello hafnar þessu aldrei, enda myndi margt í máli hennar falla um sjálft sig ef hún gerði það. Costello segir að bæði „skynsemi og sjö áratuga lífsreynsla“ segi sér að skynsemin sé hvorki eðli al- heimsins né eðli Guðs. Hún segir að ef vera, sem er skynseminni ókunnug, horfir á hana utan frá, afhjúpist skynsemin sem feiknamikil klifun. Hún ber „fábrotið svið hagnýtrar [tæknilegrar] skynsemi“ saman við miklu athyglisverðari tegund hugsunar, það er að segja „hreinar hugleiðingar“ um gerð og réttlæti heimsins, og um spurningar eins og „Hvar er heima og hvernig kemst ég þangað?“25 Öll gagn- rýni hennar byggist með öðrum orðum á því að hægt sé að nálgast veruleikann frá víðari sjóndeildarhring skynjunar og hugsunar en viðteknar hugmyndir um skynsemi og rök leyfa. Viðleitni hennar beinist að því að fá áheyrendur sína til að opna huga sinn fyrir öðrum víddum en einungis hinni röklegu og tæknilegu. Með því auðnaðist þeim að sjá skynsemi, í þröngum skilningi þess orðs, ekki sem 22 Sama rit: 22. 23 Sama rit: 25. 24 Sama rit: 55. 25 Sama rit: 29–30. Costello segir að öll dýr sem lokuð eru „inni í helvíti rannsóknastofunnar eða dýragarðsins“ séu upptekin af þessari spurningu. Til íhugunar má geta þess að samskonar spurn- ing – um hvar og hvernig maður geti fundið sig heima á jörðinni – hefur af ýmsum verið talin driffjöður heimspekiiðkunar. Hugur 2018meðoverride.indd 94 24-Jul-18 12:21:26
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.