Úrval - 01.02.1944, Qupperneq 2
BRÉF.
Höfundur þessa bréfs hefir áð-
ur sent Úrvali bréf, en færðist
heldur undan því, að þetta bréf
yrði birt. Getum vér því ekki
nafns hans né fangamarks.
.....Þau bréf, sem ég hefi
sent Úrvali, hefi ég skrifað af
því, að mér hefir skilizt, að rit-
stjórinn vildi heyra álit sem
flestra lesenda, sem hann geti
haft til hliðsjónar við samningu
sinnar „verðlagsskrár", án þess
þau væru skoðuð sem "ritdóm-
ur“. Þetta bréf verður því að
sjálfsögðu eins, þ. e. hugleiðing-
ar frá mínu eigin sjónarmiði, en
ég er ómenntaður erfiðismaður
á f jarsta horni landsins.
Ég er raunhyggjumaður. Þess
vegna kann ég litið að meta
hýalín eins og „Töfrasprotann"
eða „Draumabarnið“, þótt það
falli máske í frjóvan og þakklát-
an jarðveg hjá einhverjum öðr-
um — og beri þar margfaldan
ávöxt — en ekki hlakka ég neitt
til þeirrar uppskeru.
Ég met flest það, sem ég les
eftir því, hvað það skilur eftir,
hvort það skemmtir mér, hvort
ég verð nokkru fróðari, hvort
það bendir mér á nýjar leiðir til
athugunar, glæðir skilning minn
o. s. frv.
Sagan „Særði skarfurinn"
þykir mér leiðinleg, og ég efast
mjög, að hún styðjist við nokk-
ur rök, eftir því sem ég þekki
til þessara fugla. Ég hefi líka
áður staðið höfund hennar að
því að vera miður rökvís í fram-
setningu, og eykur það tor-
tryggni mina. Að vera glöggur
á þjáningar annara og vorkunn-
látur er gott, innan vissra tak-
marka, en að búa til ímyndaðar
þjáníngar held ég geti verið
vafasamur gróði.
Af smásögum vil ég krefjast
þessa fyrst og fremst: Að ég
finni eitthvað til hvers þær eru
sagðar, að framsetning þeirra
stangist ekki við staðreyndir, að
þær séu gagnorðar, en orðavalið
látlaust,. Þetta næst varla nenia
höfundurinn gagnþekki það efni,
sem hann skrifar um. En þeg-
ar menn gefa ímyndunaraflinu
alveg lausan tauminn á sviðum,
sem þeir þekkja lítið eða ekkert
til, er ekki að furða þótt þeir
missi einhvers staðar jafnvægið.
Fyrir minn smekk er „Stökkið",
Frh. á 3. kápusíðu.
ÚRVAL tímaritsgreina í samþjöppuðu formi.
Ritstjóri: Gísli Ólafsson. AfgreiÖ'sla og ritstjóm Kirkjustræti 4,
pósthólf 365, Reykjavík. Kemur út sex sinnum á ári. Verð kr. 7,00
hvert hefti. Utanáskrift tímaritsins er: Úrval, pósthóíf 365, Reykjavík.
Sent til allra bóksala á landinu, og taka þeir við áskriftum. Einnig
sent gegn póstkröfu til áskrifenda, sem ekki búa í nágrermi bóksala.
ÚTGEFANDI: STEINDÓRSPRENT H.F.