Úrval - 01.02.1944, Blaðsíða 124
122
tíRVALi
steins reyndist eins þýðingar-
mikill viðburður fyrir vísindin
og fall eplisins í garði Newtons,
því að það varð þess valdandi,
að Einstein tók kenninguna um
þjmgdarlögmálið til gagngerðr-
ar athugunar.
Enn einu sinni komst hann
að ákaflega merkilegum niður-
stöðum. Hann hélt því fram, að
eðlisfræðingar hefðu í grund-
vallaratriðum haft rangt fyrir
sér, þegar þeir álitu, að hlutir
dyttu þannig, að þeir væru
togaðir niður af aðdráttar-
afli jarðar. Enginn hlutur er
togaður niður. Það er meira að
segja ekkert „upp” eða „niður,”
í alheiminum. „Hreyfing hlutar
er aðeins tilhneiging efnis til að
fara þá braut, þar sem viðnámið
er minnst.“ Hlutir sem hreyfast
í rúminu, velja auðveldustu
leiðirnar og forðast hinar erf-
iðari. Það er engu meiri ástæða
til að búast við algildu aðdrátt-
arafli í rúminu heldur en að
vænta algilds tíma. Alveg eins
og til eru staðbundin tímakerfi,
á sama hátt eru til staðbundin
svið aðdráttarafls. Allir efnis-
kenndir hlutir — eins og sólin
t. d. — umskapa við miðdepil
sinn nálægt rúm í einskonar
ávala „hæð”. Og allir efnis-
kendir hlutir í nágrenni þessar-
ar hæðar — svo sem jörðin og
aðrar reikistjömur sólkerfisins
— hreyfast umhverfis þessa
hæð, af þeirri einföldu ástæðu,
að það er auðveldasta brautin
fyrir þær. Einstein sannaði
þessa „boglínu”-kenningu sína
á stærðfræðilegan hátt. Aðal-
atriðið í kenningu hans er
þetta: Minnsta fjarlægð milli
tveggja púnkta er ekki bein
lína heldur bogin, vegna þess
að alheimurinn er allur gerður
af ávölum hæðum og allir hlut-
ir í rúminu renna hringske ð
sitt í hlíðum þessara hæða.
Samkvæmt kenningu Einsteins
er hreyfing í beina stefnu ekki
til. Geisli frá fjarlægri stjörnu
bognar á leið sinni til jarðarinn-
ar, þegar hann fer um hæða-
drög rúmsins umhverfis sólina.
Einstein reiknaði út mjög ná-
kvæmlega, hve mikil þessi
stefnubreyting geislans er.
Og niðurstaða hans reyndist
rétt. Þegar almyrkvi varð á
sólu árið 1919, sendu stjömu-
fræðistöðvamar í Cambridge
og Greenwich tvo hópa stjömu-
fræðinga til þess að ljósmynda
stefnu stjömugeislanna meðan
á myrkvanum stæði. Ljósmynd-
ir beggja hópanna staðfestu