Úrval - 01.02.1944, Qupperneq 95
IBN SAUD, ARABlUKONUNGUR
93
hafa hinir syndugu alltaf tæki-
færi til að iðrast.“
Flestir, sem heimsækja hann,
hafa einhverjar óskir fram að
færa, og koma með bænarskjöl,
sem skýra frá hverjar óskirnar
eru. Þessum skjölum er öllum
raðað, eftir mikilvægi þeirra,
og lögð fyrir konunginn, sem
ákveður svo, hvað gera skuh í
hverju máli fyrir sig. Síðari
hluta dagsins bíða svo þessir
gestir eftir konunginum til þess
að þakka honum fyrir örlæti
hans, eða til þess að biðja um
frekari úriausn.
Konungurinn sér svo um, að
enginn gestur fari frá Riad, án
þess að hafa þegið viðeigandi
gjöf. Frægum útlendingum og
háttsettum umboðsmönnum sín-
um gefur hann gullúr, dýrindis
skikkjur og gullstykki. Fyrir
hina óæðri heimsækjendur hef-
ir hann nokkurs konar almenn-
ings eldhús, þar sem sérhver
Bedúíni getur fengið máltíð, ef
hann óskar þess.
Þó að konungurinn hafi far-
ið eftir fyrirmælum kóransins í
hjúskaparmálum, hefir hann
einnig notað sér í ríkum mæli
skilnaðarákvæði hans. Þannig
á konungurinn aldrei nema
fjórar eiginkonur í einu, þó að
hann hafi verið giftur nærri 200
konum um ævina. Margar af
hinum fráskildu konum búa
áfram í höllinni. Eiginkon-
unum, fráskildu konunum og
hjákonunum kemur prýðilega
saman. Áætlað er að prinsam-
ir, sem á lífi eru og fæðst hafa
í hjónaböndum, séu 31 að tölu,
en sú tala er að öllum líkindum
allt af lág. Saud, krónprinsinn,
er borgarstjóri í Riad og einn
af helztu trúnaðarmönnum föð-
ur síns. Feisal, næstelzti sonur
konungs er nokkurs konar ut-
anríkismálaráðherra og dvelur
oft í Jedda, borginni við Rauða-
haf, sem er eina borgin í
Arabíu, sem Evrópumönnum er
leyft að hafast við í.
Það sem er athyglisverðast
við Ibn Saud konung, er hin
óbifandi trú hans á réttlætið.
Það undraði haim ekki neitt
þegar Allah, sem sendir Arabíu
rigninguna, sá landinu einnig
fyrir hinum nýju olíulindum.
Ekki mun það heldur valda hon-
um undrunar, þó að Allah sendi
heiminum frið og nýjan og
betri heim, sem fylgja á í kjöl-
far hans.