Úrval - 01.02.1944, Blaðsíða 39
KÚLAN, SEM KNÝR SIG SJÁLF
37
sett, fræðilega, hversu hátt eóa
langt væri hægt að láta slíkar
byssur draga.
Randolp og ýmsir aðrir hafa
haldið því fram, að ekki væri
óhugsanlegt, að hægt væri að
beina stórskotahríð á mark,
vegalengd, sem svaraði hálfri
leiðinni umhverfis hnöttinn, en
kostnaðurinn yrði þar þó ef til
vill þrándur í götu, og auk þess
harla ólíklegt, að mark yrði
hitt á þeirri vegalengd.
Pramtíð rakettunnar er ekki
undir því komin, að styröld
geisi. Hún er ekki aðeins til þess
gerð að knýja sprengju. Hún
er hreyfill, geysilega aflmikill
og líklegur til margvíslegra
nota. Þjóðverjar nota rakettu-
hrevfla til þess að lyfta full-
hlöðnum Dornier-sprengjuflug-
vélum til flugs, og breska flug-
málaráðuneytið hefir látið það
uppi, að notuð sé rakettu-orka
til þess að lyfta til flugs hin-
um svonefndu Catafighter-
flugvélum, sem hafðar eru á þil-
förum verzlunarskipa. Þessi
not eru eins konar reynslu-
grundvöllur, sem bygt verður á,
þegar farið verður að smíða
flugvélar, sem knúnar yrðu
með rakettuorku einni. Dr.
Goddard hefir tekið einka-
leyfi á túrbínu-rakettuheyfli,
sem ætlað er að nái 1000 mílna
hraða á klukkustund í háloftun-
um. — Rakettu-rannsóknunum
fleygir hratt áfram, á ýmsum
stöðum. Hugsanlegt er, að rak-
ettu-öld sé fyrir dyrum. Hvað
sem um það er, þá mega lesend-
ur fréttablaða eiga það víst, að
sjá í framtíðinni margt sagt um
„kúluna sem knýr sig sjálf“.
1 fararbroddi — út yfir gröf og dauða.
Bæerskur hershöfðingi, Zisa að nafni, sem hóf uppreisn gegn
Sigismundi Þýzkalandskeisara, lagði svo fyrir, að eftirdauðasinn,
skyldi skinnið af líkama hans notað í hertrumbur, svo að hann
gæti haldið áfram að vera í fararbroddi fyrir liði sinu, þótt hann
félli. Zisa féll eftir fimm ára baráttu, en trumburnar sem búnar
voru til úr skinni hans, urðu fylgismönnum hans svo mikil her-
hvöt, að það tók Þjóðverja mörg ár að bæla niður uppreisnina.
— Earl H. Emmons í „Coronet".