Úrval - 01.02.1944, Blaðsíða 48
46
ÚRVAL
ur hafði „tilhneigingu“ til að
bogna undir þunga sjálfs sín.
En að sjálfsögðu var þess að
gæta, að „skotlínan“ væri ná-
kvæmlega bein. Þurfti því að
„rétta“ hlaupið eftir hvert skot,
og var það gert með þar til
gerðu ,,talíu“-kerfi.
Til sjálfra skeytanna var
vandað svo sem verða mátti.
Þau voru 21 til 23.5 cm. að
þvermáli, en að lengd voru þau
frá 95 til 111 cm. og um 100
kg. að þyngd. Ekkert þeirra
mátti „klikka“, því að af slíku
skeyti myndu óvinimir geta
ráðið það mikið um þetta leyni-
vopn, að öll þessi fyrirhöfn
reyndist tilgangslaus, — auk
þess kostaði hvert skot um 35
þús. ríkismörk. Skeytin voru
því búin vara-kveikju, sem átti
alveg að tryggja, að þau springi.
Púðrinu var haldið í 15 stiga
hita með rafmagnshitaleiðsíum,
sem einn séfræðingurinn hafði
útbúið sérstaklega til þess. í
hverja kúlu fóru 150 kg. af
púðri, er gaf slíkan loftþrýst-
ing, að skeytið þeyttist fram
1800 metra á sekúndu. Umsjón-
armaður sá, sem um hleðsluna
sá í „púður-apótekinu“ fékk
jafnóðum nákvæmar lýsingar á
því, frá stöðinni, hvemig skotin
reyndust, og gat hann þannig,
á síðasta augnabliki áætlað
hverja hleðslu, vegið nákvæm-
lega hvert efni fyrir sig, og
sent síðan þangað sem fallbyss-
an var. En Rogge varaflotafor-
ingi bar persónulega ábyrgð á
hverju einasta skoti, sem „pund-
að var á París.“
Stöðvar þessar voru vand-
lega „dulbúnar". Til þess voru
notaðir dúkar og net, sem
breidd vom yfir fallbyssuna og
allan hennar útbúnað, „bragga“,
lyftivélar, forðaskemmur, járn-
brautarteina o. s. frv. Úr lofti
var ekki annað að sjá, en þar
væri græn- og brún-flekkóttur
skógur,
Til þess, að ekki væri hægt að
staðsetja fallbyssuna úr lofti, á
meðan úr henni var skotið, var
safnað saman um 30 mismun-
andi „þungum“ fallbyssusveit-
um, í Crépy-skóginum. Þeim
var komið fyrir í hring umhverf-
is „Parísardömuna" og skyldu
hleypa af skothríð samtímis
henni. Og ekki mátti skjóta af
bákninu í myrkri.
Loks gaf herforingjaráðið út
svohljóðandi skipan:
„Það verður að fyrirbyggja,
hvernig sem á stendur og með
öllum hugsanlegum ráðum, að