Úrval - 01.02.1944, Blaðsíða 87
AUGA FYRIR AUGA
85
læknisins, sem hann hélt upp að
auganu, og brosið á vörum
hjúkrunarkonunnar.
Sjúkingurinn var látinn hvíla
sig mánaðartíma. Þá var síðari
aðgerðin framkvæmd, á hinu
auganu.
Þrem mánuðum síðar fékk
Iæknirinn jólakort frá Kanada.
Á það var skrifað: „Er nýbúinn
að standast augnprófun hjá
hinni konunglegu kanadisku
flugherstjórn.“
Skurðlæknirinn, sem fram-
kvæmdi þessa aðgerð, dr. Ra-
mon Castroviejo, hefir gert
rúmlega 500 „homhimnu yfir-
færslur" í „Columbia Presbyt-
erian Medical Center“, New
York. Hér um bil 90 af hundr-
aði hafa heppnast.
í hvert sinn, sem einhver fær
sjónina aftur fyrir þessar að-
gerðir, virðist honum árangur-
inn líkastur kraftaverki. Ég var
viðstaddur, þegar verkamaður í
skipasmíðastöð kom til augn-
læknis til athugunar, mörgum
vikum eftir að slík aðgerð hafði
verið gerð á honum með góðum
árangri. Hann sagði: „Maður,
þegar stálflísin þeyttist í augað
á mér, hugsaði ég með sjálfum
mér: „Nú er öllu lokið, — ég sé
aldrei út um þetta auga fram-
ar.“ Og þetta héldu þeir allir á
stöðinni. En læknirinn, sern þar
er, vissi eitthvað um hom-
himnu-yfirfærslu. Og lítið þér
nú á augað!“
Ég ,,leit“ á það. Á miðju aug-
anu, rétt yfir augasteininum,
var örlítill skyggður ferhym-
ingur. „Þetta er glugginn
minn,“ sagði verkamaðurinn.
„Ég sé eins vel gegnum hann
og með heilbrigða auganu. Og
félagar mínir em alltaf að
koma til mín og gera ekki ann-
að en að horfa á augað í mér
og hrista hausinn. Drottinn
minn dýri! læknir, þeir halda
að þér séuð galdramaður.“
Fyrir tíu ámm mátti með
sanni telja það kraftaverk, ef
slík aðgerð heppnaðist. En upp
úr því fór lítill hópur lækna að
njóta ávaxta af margra ára til-
raunum, en það voru þessir
læknar: Tudor Thomas á Eng-
landi, Filatov í Rússlandi, El-
schnig í Tékkóslóvakíu og Ra-
mon Castroviejo í Bandaríkj-
unum.
Menn höfðu látið sig dreyma
um slíkar aðgerðir öldum sam-
an. Árið 1798 reyndi franskur
skurðlæknir, Pellier de Quengsy,
að sauma glerplötu í skýjaða
homhimnu á auga blinds manns.