Úrval - 01.02.1947, Side 66

Úrval - 01.02.1947, Side 66
64 tTRVAL ar, heldur vegna þess, að hetjan hafnaði boði Napoleons um meira landrými. En San Marino er meira en furðulegt fyrirbrigði. í stjóm- málaöngþveiti Evrópu er þetta litla ríki eins og sýningar- skápur, þar sem 1600 ára gam- alt lýðræði er til sýnis. Með stjórn lýðveldisins fer stórráð- ið, sem skipað er 60 mönnum og svipar til neðri deilda í þingum annara landa. Allir karlmenn eru kjörgengnir. Kjörtímabilið er sex mánuðir. Allir karlmenn verða að kjósa, enda þótt 80% þeirra séu ólæsir og óskrifandi — og er þetta gert til þess að fá skoðun almennings fram, því að íbúatalan alls er ekki nema 14.545. Ungar skólatelp- ur, klæddar hvítum búningi, að- stoða hina fáfróðu við að kjósa. Einn San Marinobúi sagði yndislega barnalega: „Lítil stúlka er það hreinasta, sem til er á jörðinni, og hún svíkur áreiðanlega ekki þann, sem treystir henni.“ Stórráðið velur tólf menn úr sínum hóp til þess að skipa efri deildina. Stórráðið setur lög og sýknar glæpamenn, en efri deildin eða öldungarráðið út- nefnir 12 fremstu borgara landsins sem frambjóðendur til tveggja æðstu embætta ríkisins — herforingja- og forseta- embættisins. Forsetastaðan er ekki eftir- sótt. Kjörtímabilið er sex mán- uðir og launin kr. 32.50 á mán- uði. En að hafna embættinu varðar hárri sekt. Þegar fram- bjóðendur hafa verið útnefndir, er þeim fækkað niður í sex með atkvæðagreiðslu. — Nöfn þeirra eru skrifuð saman á miða, tvö og tvö, og prestur setur miðana í silfurkrukku. Síðan dregur blindur drengur einn miða úr krukkunni með hátíðlegri við- höfn; og hinir tveir æðstu stjórnendur San Marinos hafa verið kjörnir. Þegar San Marinobúar skipa í aðrar mikilvægar stöður, leita þeir út fyrir landamærin — fólk er svo tengt í San Marino, að of mikillar hlutdrægni myndi gæta. Þess vegna flytur San Marino inn hina 12 lögreglu- þjóna sína, dómara sinn, þrjá lækna (sem launaðir eru af rík- inu) og einn prest. Lýðveldið var stofnað af Marinusi nokkrum, steinhöggv- ara frá Dalmatíu, — sem tek- inn var í helgra manna tölu eftir dauða sinn árið 360 e. Kr.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.