Úrval - 01.02.1947, Síða 72
70
ÚRVAL,
vinna landið. Það var eyðileg-
ur, vindnúinn tindur, sem
gnæfði yfir þrjú þorp niðri á
flatneskjunni.
Allar lífsnauðsynjar varð að
flytja upp á hæðina á lamadýr-
«œ. Tingrýtið, sem þau pældu
upp úr brekkunni í sveita síns
andlitis, urðu þau að mylja með
höndunum á steini við munnann
á ólögulegum göngunum. Síðan
urðu þau að flytja tinið á lama-
dýrunum til kaupendanna í
Oruro, margar mílur í burtu.
Þau strituðu myrkranna á
milli. Hendur þeirra hörðnuðu
og sprungu. Nálægt göngunum
reistu þau ódýran kofa fyrir
ágóðann af fyrstu tinsölunni í
Oi'uro.
í fyrstu var hagnaðurinn
raunalega lítill. Tingrýtið var
yfirleitt sáralítils virði. Samt
nægði það til þess að halda líf-
inu í þeim hjónunum og börn-
um þeirra — því að Símon Pat-
inó og Albína, kona hans, höfðu
eignast tvö böm þarna á næð-
ingsömum tindunum. Vonbrigði
á vonbrigði ofan — reikningar
frá kaupmönnunum í Oruro
hlóðust upp, en þau bitu á jaxl-
ínn og héldu áfram að grafa og
grafa.
Eftir því sem göngin dýpk-
uðu, varð tingrýtið betra. Tin-
ið í því varð hlutfallslega meira.
Loks var það dag einn, að þau
lentu í jarðvegi, sem var ríkarí
að tini en þekktist annars stað-
ar þar um slóðir.
Patinó og konu hans var
borgið. Plann jók við sig. Með
hægðinni festi hann kaup á
rneira landi í héraðinu. Hann
réði til sín Indíána tugum og
hundruðum saman. Hann hrófi-
aði upp handa þeim hibýlum 2
brekkunum neðan tindsins, og
byggðin og reksturinn þandist
æ meira út.
Sögur um heppni Patinós
bárust víða. Einn góðan veður-
dag fékk hann allt í einu miljón
dollara tilboð í landið. Miljón
dollarar!
Hann ráðfærði sig við komi
sína. „Hafnaðu boðinu,“ sagði
hún. Hann fór að orðum hennar.
Innan skamms varð land hans
mörgum miljónum dollara meira
virði — og Símon Patinó byrj-
aði stórkostlegri fjármálaferií
en þekkzt hefir fyrr eða síðar.
Brátt voru bankainnstæður
hans orðnar það vænar, að þau
hjónin fluttu með börn sín af
tindinum, sem hafði breytt tini
í gull svo að töfrum sætti. Þau
settust að í stóru húsi í Oruro.