Úrval - 01.02.1947, Qupperneq 91
ÍÍT a mið mið snöru og deyfilyf
3$
skutullinn var fundinn upp til
að vinna bug á þessu vand-
kvæði.
Þetta tæki er stór nál, sem
fest er á endann á venjulegum
skutli. Deyfilyfið er svo sterkt,
að stærstu og hraustustu há-
karlar liggja sem dauðir á bak-
inu einni mínútu eftir að þeir
verða fyrir áhrifum þess. Allur
vandinn er að komast nógu ná-
lægt til að reka nálina gegnum
þykkan skráp skepnunnar og
missa ekki af henni áður en
hún sofnar. Hákarlar anda með
því að vinna súrefni úr sjónum,
sem rennur gegnum tálkn
þeirra, þegar þeir eru á ferð.
Þegar þeir eru látnir í vatn
meðan þeir eru undir áhrifum
deyfilyfsins, verður að láta
kafara ,,teyma“ þá, þangað til
þeir taka að rakna úr rotinu.
Net hafa reynzt vel við veið-
ar smærri háltarla. 1 einu neti,
sem hafði legið næturlangt, voru
eitt sinn 42 hákarlar af öllum
stærðum og margra tegunda.
Þá komst ég að því, að kútmag-
inn í hákarlinum er heldur illa
festur í kviðarholið. Þegar ég
bað einn hásetann að draga 12
feta hákarl upp á sporðinum,
svo að hægt væri að taka mynd
af honum, brosti hann íbygginn,
en gerði það, sem hann var beð-
inn um. Meðan ljósmyndarinm
var að mynda hákarlinn frá
ýmsum hliðum, opnaði hann
ginið og ældi kútmaga og görn-
um. Hann var ekki gáfaðri en
það, að hann klippti sundur véi-
indað í sjálfum sér með tönnmi-
um og varð það bani hans.
Hákarlar virðast í ætt við
geitur hvað matarlyst snertir.
Hákarl, sem starfsmenn sjávar-
dýrasafnsins veiddu, ældi haus
af 250 punda hnýsu. Upp úr
öðrum hákörlum hafa komið
blikkdósir og spítnabrak. í há-
karlamögum hafa auk þess
fundizt reglustrikur og hand-
klæði, og mér hefir verið sagt,
að hákarl, sem veiddur var langt
úti í Golfstraum, hafi hrækt út
úr sér auglýsingaspjaldi með
þessari áletrun: „Komið til Silv-
er Springs.“ Það sýnir, hve
langt menn eru komnir í aug-
lýsingastarfsemi!
Lítill búrhvalur náðist af til-
viljun, enda koma þeir hvalir
sjaldan nærri landi. Fiskimenn
sáu þennan leika sér upp við
landsteina og símuðu til safns-
ins, sem var sex mílur í burtu.
Bátar og vörubifreið voru þeg-
ar send á vettvang. Hvalurimi
var þegar kominn á of grunnt