Úrval - 01.02.1947, Side 101
FORFBÐUR OKKAR
tímamanninn, þrátt fyrir frum-
stæð einkenni, svo sem þykkt
beinsins.
Af þessmn tveim hauskúpum
er ennisbeinið óbrotið á annari,
þ. e. Piitdownkúpunni, og sést
að höfuðið hefir verið vel lag-
að, án slútandi brúnabeina. Það
skal tekið fram, að í Piltdown-
farveginum fannst einnig neðri-
kjálki, sem var óþekkjanlegur
frá apakjálka. Bn hann er í
siíku ósamræmi við mannskúp-
una, að margir sérfræðingar
telja að hann eigi ekkert skylt
við hana, en sé úr einhverri út-
dauðri chimpanzategund, enda
fundust á sama stað bein fíla,
hesta og hjarta. Við komumst
því að þeirri niðurstöðu, og að
vísu okkur til undrunar, að
þessar frumstæðu manntegund-
ir hafi verið mjög óiíkar inn-
byrðis. Það er athyglisvert, að
munm’inn á Pekinmanninmn,
með lága ennið og stóru brúna-
beinin, og Piltdowmanninum,
með hið tiltölulega háa enni, er
miklu meiri en munurinn á Ev-
rópumanni nútímans og hinum
frumstæðasta manni, sem nú
lifir, Ástralíunegranum.
En sem betur fór (fyrir
fomleifafræðinginn), tókumenn
að lifa í hellum, þegar ís-
öldin færðist yfir, og þannig
geymdust verkfæri þeirra, mat-
arleifar og aska. Stundum
finnst lag á lag ofan í hellunum,
og innanum moldina eru tinnu-
steinar, bein og aska. Einn stór
hellir, sem ég gróf út í Pal-
estínu, hafði verið mannabú-
staður að staðaldri um tugi ár-
þúsunda, gólflagið var 75 fet á
þykkt og fullt af fornminjum.
Það er ljóst, að auðveldara er
að kynnast lifnaðarháttum
manna með því að rannsaka
bústaði þeirra heldur en með því
að athuga verkfæri, sem fund-
ist hafa, máð og dreifð í göml-
um árfarvegum.
Það vantar að vísu marga
hluti; með rnjög fáum undan-
tekningum hafa allir hlutir úr
tré eyðilagst, og við þurfum
ekki annað en að líta á frum-
stæða kynflokka nútímans til að
skilja, hve trjáviður er mikil-
vægt atriði í búskap þeirra.
Ástralíunegrar nota t. d. við í
flest verkfæri sín og áhöld —
spjót, skildi, krukkur, diska o.
s. frv. — og það er engin ástseða
til að álíta, að frummennirnir
hafi ekki gert slíkt hið sama.
Dýraskinn hljóta að hafa verið
notuð í klæði, skjóður og á-
breiður, en allar leifar þessa