Úrval - 01.12.1954, Síða 2
Vorkenndu ekki sjálfum þér!
Framhald af 3. kápusíðu.
sagði hann brosandi, „ætla ég að
vita hvort ég get ekki byggt hús.“
Hann er nú í hópi fremstu húsa-
meistara Bretlands.
1 fæðingarbæ mínum í Skot-
landi lifði til skamms tima gömul
kona. Þegar hún var 26 ára, lézt
maður hennar af slysförum og
hún stóð ein allslaus uppi með
fimm unga drengi. En hún lagði
ekki árar í bát og með óbilandi
þrautseigju og dugnaði tókst
henni að koma öllum drengjun-
um til mennta og naut þeirrar
ánægju að sjá þá alla verða að
nýtum mönnum. Þegar ég spurði
gömlu konuna — sem raunar var
amma mín — hvemig í ósköpun-
um hún hefði getað klofið þetta,
sagði hún blátt áfram og án
nokkurs stolts: „Ég var aldrei
neitt gefin fyrir að horfa í gaupn-
ir mér og vorkenna sjálfri mér.“
Ég gæti nefnt fjölmörg fleiri
dæmi um menn og konur, sem
létu ekki leiðast til sjálfsmeð-
aumkunar þótt lífið færi um þau
hörðum höndum. Flestir hafa
•. heyrt um Helen Keller, sem þrátt
fyrir blindu og heyrnarleysi frá
blautri bernsku hefur hlotið
heimsfrægð sem rithöfundur og
fyrirlesari. öll þekkjum við dæmi
úr nánasta umhverfi okkar um
fólk, sem staðið hefur af sér
storma, er virtust hverjum manni
ofraun.
í hinu forna, gríska spakmæli:
„Eins og maðurinn hugsar, þann-
ig er hann“ er fólginn kjarni
málsins. Það er svo auðvelt að
hugsa skakkt, ekki aðeins þegar
mikinn vanda ber að höndum,
heldur einnig í smámunum dag-
legs lífs.
Hugsanir okkar búa yfir mætti
til sköpunar og tortímingar; þær
eru eins og hverfisteinn, sem hægt
er að hvessa á vopn til að vega
sjálfan sig eða verkfæri til að
byggja sér bústað gleði og friðar.
Sjálfsmeðaumkunin er slíkt vopn.
Getur nokkur efast um hvort sé
farsælla að hvessa það vopn eða
virkja hugann í þágu uppbygg-
ingar? Og ef við þrátt fyrir það
finnum, að hætta er á að sjálfs-
meðaumkunin nái tökum á okkur,
þá minnumst Victors gamla Hugo
uppi á klettinum á útlegðareyju
sinn, þegar hann varpaði stein-
völum sjálfsvorkunnseminnar fyr-
ir björg. Má mikið vera, ef við
finnum ekki í þeirri táknrænu
athöfn styrk til að hrista af
okkur slenið og horfast í augu
við vandann.
Þýöendur þessa heftis eru (auk ritstjórans): Erlingur Halldórsson
(E. H.), Óskar Bergsson (Ó. B.), Sigurbjörn Einarsson
(S. E.) og Stefán Jónsson (St. J.).
ÚBVAL — tímarit. — Kemur út 8 sinnum á ári.
Ritstjóri: Gísli Ólafsson, Leifsgötu 16, Reykjavik. Sími 4954.
Afgreiðsla Tjamargötu 4. Askriftarverð 70 krónur.
tJtgefandi: Steindórsprent h.f.