Úrval - 01.12.1954, Page 66
64
ÚRVAL
maður skilur hvar skórinn
kreppir, og móðir getur tæpast
neytt sig til að hlýða ráði, ef
hún er því ekki samþykk í
hjarta sínu, eða ef hún skilur
ekki sjálf erfiðleika sína. En ef
við spyrjum nú: hvernig getur
skúningur okkar á móður
Margaretu, sem ég sagði frá
í upphafi, orðið okkur að liði?
Þá er því að svara, að Marga-
reta fékk skilning á því, að
ofríki og eigingirni móðurinn-
ar og þrjózka hennar sjálfrar
áttu rætur í sömu tilfinning-
unni: ,,Þeim þykir ekki vænt
um mig“. Sá skilningur auð-
veldaði þeim báðum að leggja
óvildina á hilluna. Margareta
átti hægra með að tala hrein-
skilningslega við móður sína,
og við það fékk móðirin betri
skilning á hegðun sinni.
Um frú Jakobsson er það að
segja, að með því að fá skiln-
ing á sjálfri sér og Sissu, var
von til þess að hún hætti að
leita uppbótar í ástríðufullri
athafnasemi utan heimilisins, en
ræddi í staðinn opinskátt við
manninn um vandræði sín. Og
ef til vill gæti hún hjálpað
Sissu til að láta tilfinningar sín-
ar í garð móðurinnar í ljós á
eðlilegan hátt, svo að hún þyrfti
ekki að gera það óbeint. Sann-
leikurinn er oft sá, að það sem
okkur finnst vera frávísun er
það í rauninni alls ekki. Það er
alltaf nokkur hjálp í því að
létta á hjarta sínu og tala af
hreinskilni, og minnast þess
jafnframt, að sárni okkur við
einhvern nákominn, er eins lík-
legt að honum sé eins innan-
brjósts, hann hugsi eins og
við: ,,Þeim þykir ekki vænt um
mig“.
Löng bið.
Kvikmyndaleikari fór með konu sína á fæðingardeild, er hún
hafði tekið léttasóttina að fyrsta barni þeirra. Vegna hlutverks,
sem hann átti að fara að leika, hafði hann fjórurn dögum áður
byrjað að láta sér vaxa skegg.
Hann settist inn í biðstofuna, sem ætluð var tilvonandi feðr-
um. Þegar hann hafði setið þar nokkra stund, kom ungur mað-
ur inn. Var honum sýnilega órótt innanbrjósts, því að hann
gekk eirðarlaus um gólf. Allt í einu kom hann auga á leikar-
ann. Hann starði á hann andartak, en hrópaði svo upp yfir sig:
„Guð minn góður, hvað eruð þér búinn að bíða lengi?"
— Point de Vue.