Úrval - 01.12.1957, Blaðsíða 88
Ástin er einstœðingur
Úr bókinni „Sangen om den röde rubin“,
eftir Agnar Mykle.
Saröarinn hvítra svaoa,
Þegar þú víkur út af götunni
um kyrra mannauða vomótt
og beinir skrefum þínum að al-
menningsgarðinum, þegar þú
stendur fyrir framan háu jám-
grindina og lyftir hendinni til
þess að leggja hana á stóra
slitna koparklinkuna, þá muntu
kingja munnvatni þínu.
Kannski er það vegna þess að
nú er nótt, því nóttin er ólög-
legur tími. Eins og gamall þjóf-
ur snýrðu þér hljóðlega við og
hvimar snögglega upp á húsin
hinumegin við götuna. Húsin
sofa. í hundruðum glugga, flest-
um með tjöldin dregin fyrir, er
hvergi auga að sjá. Bærinn
sefur.
Kannski er það vegna þess
að þetta er afskekktur garður
sem þú ert á leið inn í; meðvit-
undin um eyðilegan garð vekur
með fólki kennd óákveðins sam-
vizkubits. í bemsku og framan
af æskuárunum höfum við öll
aðhafzt sitt af hverju í almenn-
ingsgarði. Við erum búin að
gleyma hvað það var, en við
gerðum það í garði. Og við gerð-
s«
um það að vorlagi, þegar dimmt
var, þegar nótt var, þegar ilm-
aði af moldu og trjám.
Einnig getur það verið vegna
þess að garður hefur eitthvað
vægðarlaust og óbifanlegt yfir
sér; sértu á annað borð kominn
þangað inn þarf særingu eða á-
setning eða yfirbót til þess að
komast þaðan út aftur. Sannar-
lega hvílir hin friðsæla, græna
slikja vinjarinnar yfir almenn-
ingsgarði, en hún er séð utan
frá. Þegar þú ert kominn inn
fyrir, uppgötvar þú að umhverf-
is vinina er há girðing úr smíða-
járni, þú ert fangi, með einu
töfrabragði hefur vinin breytzt
í klefa. Fórstu þá inn í garðinn
til þess að knýja fram stefnu-
mót eða úrslit? Hið stóra auga
næturinnar mun hvíla rannsak-
andi á þér og afhjúpa verð-
leika hjarta þíns. Allir skjálfa
andspænis þeim möguleika, og
þú munt ævinlega kingja fyrir
framan hliðið á eyðilegum garði
um vomótt.
En aðallega er þetta vegna
þess að þú ert stúdent og tutt-
ugu og þriggja ára gamall,
vegna þess að lokadansleikur