Úrval - 01.12.1957, Blaðsíða 43
MATARÆÐI OG HJARTASJÚKDÖMAR
ÚRVAL
athygli rnanns eru lungnakr abbi
og kransæðastífla. Báðir eru oft
banvænir. Báðir eru algengari
í körlum en konum. Báðir eru
algengari í mönnum á miðjum
aldri en á öðrum aldursskeið-
um. Ýmsar kenningar eru uppi
um það hverju þetta valdi. En
margar þeirra eru hreinar get-
gátur.
Af skoðunum manna um það
hvað einkum valdi vaxandi út-
breiðslu kransæðastíflu er sú
aimennust að það sé breytt
mataræði. Að það gjald sem
við greiðum fyrir gott eldi
barna okkar sé ofeldi okkar
sjálfra. í annan stað er fullyrt,
að nútíma aðferðir við tilreiðslu
matar eyðileggi einhver dýrmæt
næringarefni. Það er þetta at-
riði, spurningin um það hvort
mataræði geti valdið kransæða-
stíflu, sem ég ætla að ræða hér
á eftir.
Það er vitanlega enginn efi
á því, að mataræði okkar hef-
ur breytzt. Ég sagði einmitt áð-
an, að bætt næring sé megin-
orsök bætts heilsufars barna.
í mataræði okkar er miklu
meira af þeim næringarefnum
sem nauðsynleg eru hraustum
líkama. Meiri mjólk, kjöt, egg,
smjör, smjörlíki, ávextir og
grænmeti. Úr þeim fáum við
meira prótein og meira af
nauðsynlegum bætiefnum svo
sem vítamínum og málmsölt-
um. Og ein meginástæðan til
þess að við getum nú fengið
allan þennan holia mat árið um
kring eru hinar geysimiklu
framfarir í meðferð og geymslu
matvæla.
Tii þess að hafa kjöt á vet-
urna kunnu menn áður fyrr ekki
annað ráð en að salta það. Fryst-
ing og niðursuða hafa gjör-
breytt þessu, og einnig að því
er snertir ávexti og grænmeti.
I annan stað hefur flutningur
fólksins úr sveitunum til borg-
anna valdið því, að við erum
liáðari framleiðendum matvæla
um geymslu og tilreiðslu þeiiTa.
en áður.
Næringaríkari matur, verk-
smiðjuframleiðsla á mat, nýjar
matvælategundir eins og smjör-
líki — öll þessi gæði berast
okkur upp í hendurnar um
sama leyti og æ fleiri deyja úr
kransæðastíflu. Hvílíkur hval-
reki á fjörur sófapostulanna!
Þeir hafa heldur ekki látið á
sér standa að leggja orð í belg.
Vikublöð og dagblöð jafnt og
læknablöð eru full af bolla-
leggingum um það, að hve
miklu leyti breytt mataræði
kunni að vera orsök kransæða-
stíflu. Jafnhliða er að sjálf-
sögðu unnið að vísindalegum
rannsóknum á þessu, en mig
furðar á því hve þeim er lítill
gaumur gefin í öllum þessum
bollaleggingum. Afleiðingin er
sú, að mjög erfitt er orðið að
greina á milli staðreynda og
kenninga.
En við skulum samt reyna að
gera okkur grein fyrir hinu
raunverulega sambandi milli
41