Úrval - 01.12.1957, Qupperneq 95

Úrval - 01.12.1957, Qupperneq 95
ÁSTIN ER EINSTÆÐINGUR Hann kingdi og fór að tala stamandi um Frakkland. Hann hafði einmitt verið að lesa öm- urlcga bók eftir franskan höf- und, Louis Guilloux, hún hét „Le sang noir“. Annars var hún líka komin út á norsku undir heitinu „Dautt blóð“. Hún fjall- aði um gamlan menntaskóla- kennara í frönsku sveitaþorpi, kennara sem var svo illa farinn og trúlaus á sjálfan sig, að nemendur hans beittu hann að síðustu fullkominni harðstjórn. Þeir kúguðu hann til að standa á verði við gangdyrnar til þess að líta eftir hvort umsjónar- maðurinn kæmi, á meðan þeir sátu sjálfir við að spila póker í bekknum! Kennarinn gekk undir auknefninu Cripure. Kennslugrein hans var heim- speki og hann var sérfræðing- ur í „Gagnrýni á hinni hreinu skynsemi" eftir Kant, „Criti- que de la Raison Pure“. Þessu höfðu nemendurnir umsnúið í „Cripure de la Raison Ticque“. Þar af kom auknefni hans. Plafði hún lesið þessa bók? „Nei,“ sagði hún, „en þetta hljómar aldeilis voðalega". „Já,“ sagði hann, „það er hryllileg bók. Bók um mann sem hefur vald yfir heimspekinni, en ekki hæfileikann til að lifa.“ Hann bætti við, því þetta var vorið 1939, og dimm ófriðar- ský grúfðu þá þegar yfir Ev- rópu: „Mér fannst, þegar ég las þessa bók eftir Guilloux, að það ÚRVAL sem hann í raun réttri skrifaði um, væri ekki gamall mennta- skólakennari, sem kallaður var Cripure, heldur land sem heitir Frakkland." Þau sátu þegjandi um stund. Svo sneri hún sér að honum og sagði brosandi, en hann sá ögrunarglampa leynast í bros- inu: „Veiztu hvaða heimspekingi ég hef mestan viðbjóð á?“ „Nei.“ „Schopenhauer. Hann sagði: ,Lífið er varhugavert fyrir- brigði, og ég ætla að eyða lífi mínu í að hugsa um það.‘ Hef- urðu heyrt annað eins? Viltu gera svo vel, að gefa mér sígar- ettu? Ég verð svo æst, þegar ég hugsa um þennan and- styggilega Schopenhauer.“ Hann rétti henni sígarettuna með aðkenningu af þakkláts- semi. Svo sagði hann: „Ég er víst ekki sammála þér. Jú, kannski, þegar um viðhorf þitt til lífsins er að ræða. En meðal heimspekinganna eru það eingöngu hinir miklu og dauð- hreinsuðu bölsýnismenn sem gagntaka mig. Þeir sem boða fallvelti og fánýti lífsins. Hinir, hálfvolgu bjartsýnismennirnir, þessir góðu og fínu, þeir finnst mér vera falskir, eins og tilbú- in vaniljusósa, eins og Oxford- prédikari. Versti heimspeking- urinn sem ég þekki er ameríski bjartsýnismaðurinn William Ja- mes, faðir pragmatismans, hinn hagsýni heimspekingur, sem 93
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.