Úrval - 01.05.1968, Page 64
62
ÚRVAL
Kartöflurnar koma tandurhreinar
úr þvottinum, veltandi af hallandi
færiböndum niður í geymi úr ryð-
fríu stáli, þar sem mýkingarupp-
lausn og háþrýstisprautun nær
hýðinu af þeim.
Fimm mínútum síðar velta hýð-
islausar kartöflurnar inn í bjart
snyrtiherbergi. Þar flytja önnur
færibönd þær til handfljótra
kvenna, sem sitja við beltin, klædd-
ar hvítum svuntum og húfum. Þær
skera af allar skemmdir og öll lýti
og beina burt kartöflum, sem eru
vanskapaðar eða of litlar. Þær kart-
öflur eru svo notaðar í framleiðslu
annarra tegunda af steiktum kart-
öflum, þ. e. smákúlur eða ræmur,
í öðrum tveim vélasamstæðum.
Konurnar grípa of stórar kartöflur,
sneiða þær leiftursnöggt sundur í
tvennt og senda kartöfluhelmingana
áfram. Ef karöflurnar eru holar
innan, eru þær sendar í úrgang.
Við hin albeztu skilyrði getur þaul-
vön kona meðhöndlað á þennan
hátt rúm 4000 pund af kartöflum á
klukkustund eða meira en eina á
sekúndu.
Kartöflurnar velta síðan eftir
færiböndum undir röð af alls kon-
ar skurðtækjum, sem skera þær í
lengjur og skera til brúnirnar á
lengjunum, þannig að þær verði
gáraðar. Síðan eru bitarnir baðaðir
í brennheitu vatni, sem drepur ör-
litlar lífverur, sem í þeim kunna
að vera, og varnar því, að bitarnir
drekki í sig of mikla fitu í steik-
ingu.
Síðan steypast bitarnir „fölir“ og
slyttislegir niður í geysistóra steik-
ingargeyma, en í þeim er blanda
úr baðmullarfræsolíu og sojabauna-
olíu. Verksmiðjan notar fullan
flutningabílsgeymi af blöndu þess-
ari á hverjum sólarhring, en þar
er um að ræða 54.000 pund. Starfs-
menn fylgjast vel með klukkum og
hitamælum. Séu bitarnir of lítið
soðnir, er hráabragð að þeim, og
þeir líkjast meira hrárri en soðinni
kartöflu. Séu þeir ofsoðnir, bunga
þeir út til hliðanna, en falla saman
í miðjunni. Og bæti blöndunartæk-
in ekki við réttu magni af olíu á
nákvæmlega réttu augnabliki, safn-
ast fitusýrur saman og gefa bitun-
um beiskt bragð. Á beltum, sem
hristast sífellt, hrynur burt öll ó-
þarfa fita, sem kann að vera utan
á bitunum, og síðan steypast þeir
niður i 172 feta löng göng, þar sem
er frost. Þar harðfrjósa þeir og
koma þaðan eftir 15 mínútur. Þá
eru þeir skoðaðir við önnur færi-
bönd, og úr eru tíndir allir bitar,
sem eru ofbrúnaðir eða brotnir.
Slxkt er notað til skepnufóðurs. Síð-
an fer fram prófun á gæðum og
bragði og enn önnur stærðarflokk-
un. Að því búnu fer fram vigtun
og pökkun í sjálfvirkum vélum.
Alltaf er verið að gera tilraunir
með nýjar vinnsluaðferðir og aukna
fjölbreytni í framleiðslu. f Potato
Service Inc. er nú t. d. verið að
gera tilraunir með að tilreiða og
frysta kartöflusalat, sem á svo að-
eins að þurfa að þíða, áður en það
er borið á borð. Lánist önnur til-
raun, sem verið er að gera, munu
bráðlega koma á markaðinn vélar
hliðstæðar popkorn-sjálfsölum.
Stinga skal peningi í rifu, og þá
mun pakki af frystum, fransksteikt-